![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/03/Robert_Fripp_2.jpg/640px-Robert_Fripp_2.jpg&w=640&q=50)
King Crimson
ensk hljómsveit / From Wikipedia, the free encyclopedia
King Crimson var ensk hljómsveit sem spilaði tilraunakennt og framsækið rokk. Sveitin var stofnuð árið 1968 og fór gítarleikarinn Robert Fripp fyrir henni Ýmsar mannabreytingar voru í sveitinni utan Fripps. King Crimson var starfrækt með hléum: 1968–1974, 1981–1984, 1994–2008 og 2013–2021.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/03/Robert_Fripp_2.jpg/640px-Robert_Fripp_2.jpg)
Sveitin blandaði meðal annars jazzi, klassík, þjóðlagatónlist við rokk og notaðist við ýmis hljóðfæri eins og: Saxófón, fiðlu, mellotron hljómborð, flautu, ýmis konar ásláttarhljóðfæri og hljóðgervil.
Þekktasta verk Crimson er fyrsta plata þeirra: In the Court of the Crimson King.
Alls skipaði á þriðja tug manna King Crimson og fjölmargir komu að auki við sögu á plötum sveitarinnar, helst má nefna: Greg Lake, Keith Tippett, Jon Anderson, Mel Collins, Boz Burrell, Bill Bruford, John Wetton, David Cross, Jamie Muir, Tony Levin og Adrian Belew. [1]
Sveitin hætti árið 2021.