Malasía
ríki í Suðaustur-Asíu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Malasía | |
Malaysia | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Bersekutu Bertambah Mutu (malasíska) Eining er styrkur | |
Þjóðsöngur: Negaraku | |
Höfuðborg | Kúala Lúmpúr |
Opinbert tungumál | malasíska |
Stjórnarfar | Þingbundin konungsstjórn |
Konungur | Ibrahim Iskandar af Johor |
Forsætisráðherra | Anwar Ibrahim |
Sjálfstæði | frá Bretlandi |
• Malajasambandið | 31. ágúst 1957 |
• Stofnun | 16. september 1963 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
67. sæti 330.803 km² 0,3 |
Mannfjöldi • Samtals (2020) • Þéttleiki byggðar |
43. sæti 32.730.000 92/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2020 |
• Samtals | 900,426 millj. dala (30. sæti) |
• Á mann | 27.287 dalir (51. sæti) |
VÞL (2019) | 0.810 (62. sæti) |
Gjaldmiðill | Ringgit (MYR) |
Tímabelti | UTC+8 |
Þjóðarlén | .my |
Landsnúmer | +60 |
Malasía er land í Suðaustur-Asíu. Það skiptist milli tveggja landsvæða; Vestur-Malasíu á Malakkaskaga og Austur-Malasíu á eyjunni Borneó, með Suður-Kínahaf á milli. Vestur-Malasía á landamæri að Taílandi í norðri, og mjótt sund skilur það frá Singapúr í suðri. Austur-Malasía á landamæri að Brúnei í norðri og Indónesíu í suðri. Höfuðborg Malasíu er Kúala Lúmpúr en stjórnarsetrið er í Putrajaya. Árið 2010 var íbúafjöldi Malasíu 28,33 milljónir og þar af bjuggu 22,6 milljónir í vesturhlutanum. Höfðinn Tanjung Piai á suðurodda Vestur-Malasíu er syðsti punktur meginlands Asíu.
Uppruna Malasíu má rekja til hinna ýmsu ríkja malaja á Malakkaskaga sem lentu á áhrifasvæði Breska heimsveldisins á 18. öld. Skiptingin milli Malasíu og Indónesíu var ákveðin í samningum milli Bretlands og Hollands í kjölfar Napóleonsstyrjaldanna. Ríkin á Malakkaskaga mynduðu síðan Malajabandalagið árið 1946 sem breyttist í Sambandsríkið Malaja árið 1948. Þetta ríki fékk sjálfstæði frá Bretlandi árið 1957. Þetta ríki sameinaðist Norður-Borneó, Sarawak og Singapúr árið 1963 og bætti því sí við nafnið sem varð Malasía. Tveimur árum síðar var Singapúr rekið úr sambandinu.
Malasía er fjölmenningarríki sem hefur mikil áhrif á stjórnmál landsins. Opinber trúarbrögð Malasíu eru íslam en 20% íbúa aðhyllast búddisma, 9% kristni og 6% hindúatrú. Stjórnarfar í Malasíu er þingbundin konungsstjórn þar sem einn af fimm hefðbundnum einvöldum landsins er kjörinn konungur á fimm ára fresti. Stjórnkerfið byggist á breskri fyrirmynd.
Malasía er eitt af þeim löndum Asíu sem býr við hvað mesta efnahagslega velsæld. Hagvöxtur hefur verið 6,5% að meðaltali í hálfa öld. Efnahagslífið er drifið áfram af miklum náttúruauðlindum en hefur þróast yfir í fleiri geira. Malasía býr við nýiðnvætt markaðshagkerfi sem er það þriðja stærsta í Asíu og 29. stærsta í heimi. Malasía var stofnaðili að Sambandi Suðaustur-Asíuríkja, Leiðtogafundar Austur-Asíu, Stofnun um íslamska samvinnu, Efnahagssamvinnustofnun Asíu- og Kyrrahafslanda, Breska samveldinu og Samtökum hlutlausra ríkja.