Nerva
From Wikipedia, the free encyclopedia
Marcus Cocceius Nerva (8. nóvember 30[1] – 27. janúar 98) var keisari í Rómaveldi eftir dauða Domitíanusar árið 96 þar til hann lést árið 98. Þrátt fyrir stutta valdatíð hefur Nerva verið talinn fyrstur hina svonefndu „fimm góðu keisara“ sem réðu frá 96 til 180 e.kr.
Staðreyndir strax Valdatími, Fæddur: ...
Nerva | |
Rómverskur keisari | |
Valdatími | 96 – 98 |
---|---|
Fæddur: |
8. nóvember 30 |
Fæðingarstaður | Narni, Ítalíu |
Dáinn: |
27. janúar 98 |
Dánarstaður | Róm |
Forveri | Dómitíanus |
Eftirmaður | Trajanus |
Faðir | Marcus Cocceius Nerva |
Móðir | Sergia Plautilla |
Fæðingarnafn | Marcus Cocceius Nerva |
Keisaranafn | Marcus Cocceius Nerva Caesar Augustus |
Ætt | Nervu-Antoninska ættin |
Tímabil | Góðu keisararnir fimm |
Loka
Nerva var fyrsti keisarinn til að velja sér eftirmann á meðal þeirra sem hæfastir voru og ættleiða hann frekar en að velja eftirmann sinn meðal skyldmenna eins og tíðkaðist áður og gat þessi hefð af sér hina fyrrnefndu „fimm góðu keisara“.