Nifteind
From Wikipedia, the free encyclopedia
Nifteind er þungeind með enga rafhleðslu og massa upp á 939,6 MeV/c² (1,6749 x 10-27 kg, aðeins meiri en róteindar). Spuni hennar er ½ og hún telst því til fermíeinda.
Staðreyndir strax Massi, Rafhleðsla ...
Eiginleikar | |
Massi | 939,6 MeV/c² |
---|---|
Rafhleðsla | 0 C |
Spuni | ½ |
Kvarkasamsetning | 2 Niður, 1 Upp |
Flokkun | |
Öreind Oddskiptaeind Sterkeind Þungeind Kjarneind Nifteind |
Loka
Kjarni allra frumeinda er úr róteindum og nifteindum (fyrir utan algengustu samsætu vetnis, sem er einungis úr einni róteind). Nifteind og róteind kallast kjarneindir. Mismunurinn á massa- og sætistölu frumeindar () sýnir fjölda nifteinda í kjarnanum.