From Wikipedia, the free encyclopedia
Ophiocordyceps unilateralis er sveppur sem sýkir maura og hefur áhrif á hegðun þeirra.
Þessi grein þarfnast yfirlestrar, hér gæti þurft að laga málfar, stafsetningu, og/eða framsetningu. Þú getur hjálpað til og lagfært greinina. Gott er að hafa handbókina til hliðsjónar. |
Ophiocordyceps unilateralis | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Dauðir maurar sýktir með Ophiocordyceps unilateralis | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Náttúrufræðingurinn og landkönnuðurinn Alfred Russel Wallace uppgötvaði sveppinn árið 1859. Hann finnst aðallega í regnskógum. O. unilateralis sýkir maura af Camponotini ættkvíslinni og breytir hegðunarmynstri þeirra. Sýktu hýslarnir fara úr trjánum niður á skógarbotninn, þar er umhverfið heitt og rakt og því hentugt fyrir sveppavöxt. Síðan nota þeir kjálkana til þess að festa sig við stóra æð undir laufblaði, þar sem hýsillin dvelur til dauðadags.[1] Ferlið tekur allt að 4-10 daga.
Orðrétt þýðing tegundaheitsins er „snákshöfuð á þræði, einhliða“, en tegundin á sér ekki íslenskt nafn.
Tegundin þekkist við lok lífferils af æxlunnar uppbyggingu þess, sem samanstendur af mjóum, stæltum og sveigjanlegum dökklitaðum vefstilk sem framlengist frá afturhluta hauss dauða maursins. Sveppurinn sýkir maura, mest þekktir sem smíðamaurar. Sveppurinn myndar einn stilk sem rís á svæðinu fyrir aftan hálsinn þar sem gróberandi aldin er borið lárétt. Þegar maurinn er sýktur með sveppnum, klifrar hann niður úr sínu venjulega búsvæði og bíta sig fastan á neðanverðu laufi. Þetta er þekkt sem "dauðagripið" og á sér stað á mjög tilteknum stöðum.[2]
Eins og aðrir sveppir sem sýkja skordýr í ættkvíslinni Ophiocordyceps, ræðst O. unilateralis á tiltekna hýsiltegund, Camponotus leonardi maurinn. Hins vegar getur sveppurinn sýkt aðrar náskyldar tegundir af maurum með minni líkum á hýsilstjórn og minni árangri í æxlun.
Sýktir maurar sýna mjög sérstæða hegðun og hafa því verið kallaðir uppvakninga-maurar. Gróin úr sveppunum festir sig og að lokum brýtur í gegn um stoðgrind maursins með þrýstingi og ensímum.[3] Gerstig sveppsins breiðast um í líkama maursins og búa væntanlega til efnasambönd sem hafa áhrif á æðakerfi maursins og nýtir þróunareinkenni þess að svipfar ætti ekki að vera takmarkað í líffræðilegu ferli eins og prótín nýmyndun eða vefjamyndun, heldur að framlengja það til þess að innihalda öll áhrifin sem erfðavísirinn hefur á umhverfi sitt, til þess að stjórna hegðunnarmynstri sem maurinn sýnir.[4] Sýktur maur sýnir óreglulega tímasetta krampa sem losa það á skógarbotninum.[5]
Sveppurinn finnst aðallega í regnskógum Taílands og Brasilíu.[1]
O. unilateralis er þekkt fyrir að hafa gjöreytt heilum maurabúum. Maurar hafa aftur á móti getuna til þess að skynja það að meðlimur búsinns sé sýktur; heilbrigðu maurarnir bera dauðvona maurana langt í burtu frá þyrpingunni til þess að forðast smit innan búsins.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.