Prayut Chan-o-cha
Forsætisráðherra Taílands / From Wikipedia, the free encyclopedia
Prayut Chan-o-cha (taílenska: ประยุทธ์ จันทร์โอชา; f. 21. mars 1954) er taílenskur stjórnmálamaður og fyrrum hershöfðingi í taílenska hernum[1] sem var forsætisráðherra Taílands frá 2014 til 2023 og varnarmálaráðherra frá árinu 2019.[2] Prayut var hæstráðandi taílenska hersins frá 2010 til 2014[3][4] og komst til valda eftir herforingjabyltingu gegn borgaralegum stjórnvöldum Taílands árið 2014. Prayut leiddi herforingjastjórn sem réð yfir Taílandi fyrstu fimm valdaár sín en var síðan kjörinn forsætisráðherra borgaralegrar ríkisstjórnar eftir umdeildar þingkosningar árið 2019.
Staðreyndir strax Forsætisráðherra Taílands, Þjóðhöfðingi ...
Prayut Chan-o-cha ประยุทธ์ จันทร์โอชา | |
---|---|
Forsætisráðherra Taílands | |
Í embætti 22. maí 2014 – 22. ágúst 2023 | |
Þjóðhöfðingi | Bhumibol Adulyadej Maha Vajiralongkorn |
Forveri | Niwatthamrong Boonsongpaisan (starfandi) |
Eftirmaður | Srettha Thavisin |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 21. mars 1954 (1954-03-21) (70 ára) Nakhon Ratchasima, Taílandi |
Stjórnmálaflokkur | Palang Pracharat |
Maki | Naraporn Chan-o-cha |
Börn | 2 |
Háskóli | Þjóðarvarnarháskólinn, Konunglegi Chulachomklao hernaðarháskólinn |
Undirskrift |
Loka