Rokk og ról
tónlistarstefna / From Wikipedia, the free encyclopedia
Rokk og ról (e. rock and roll) er tónlistarstefna sem varð til á sjötta áratugi síðustu aldar og er sá áratugur af flestum talinn upphaf rokktónlistar. Fræðingar rekja upphaf rokksins til fyrstu ára sjötta áratugarins og að það hafi þróast úr ryþmablús og kántrítónlist. Little Richard, einn af frumkvöðlum rokksins, hefur oft sagt að Ryþmablús hafi eignast barn og úr því hafi rokkið orðið til. Margir af frægum ryþmablús tónlistarmönnum áttu mikinn þátt í því að skapa rokkið, þar á meðal eru Muddy Waters, Willie Mae Thornton og Ray Charles.[1]
Staðreyndir strax Uppruni, Vinsældir ...
Rokk og Ról | |
---|---|
Uppruni | Ryþmablús Blús Kántrítónlist |
Vinsældir | Stóðu hæst frá 1955 til 1960 |
Tengdar stefnur | |
Rokkabillí – Ryþmablús – Blús |
Loka