Simeon Sachsen-Coburg-Gotha
Forsætisráðherra og síðasti keisari Búlgaríu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Simeon Borisov von Sachsen-Coburg-Gotha (Simeon Borisov Sakskoburggotski á búlgörsku; f. 16. júní 1937) er búlgarskur stjórnmálamaður og aðalsmaður. Frá 1943 til 1946 ríkti hann barnungur undir nafninu Símon 2. sem síðasti keisari (zar) Búlgaríu. Keisaradæmið var lagt niður eftir þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1946 og Búlgaría varð kommúnískt alþýðulýðveldi. Símon ólst því upp í útlegð frá heimalandinu en sneri heim til Búlgaríu árið 1996 og hóf stjórnmálaferil. Hann var kjörinn forsætisráðherra Búlgaríu árið 2001 og gegndi því embætti í fjögur ár. Á þeim tíma gekk Búlgaría í Atlantshafsbandalagið og grunnur var lagður að inngöngu þess í Evrópusambandið árið 2007.
Simeon Sachsen-Coburg-Gotha Símon 2. | |
---|---|
Forsætisráðherra Búlgaríu | |
Í embætti 24. júlí 2001 – 17. ágúst 2005 | |
Forseti | Petar Stojanov Georgí Parvanov |
Forveri | Ívan Kostov |
Eftirmaður | Sergej Stanísjev |
Keisari Búlgaríu | |
Í embætti 28. ágúst 1943 – 15. september 1946 | |
Forveri | Boris 3. |
Eftirmaður | Embætti lagt niður |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 16. júní 1937 (1937-06-16) (86 ára) Sófíu, Búlgaríu |
Þjóðerni | Búlgarskur |
Stjórnmálaflokkur | Þjóðarhreyfingin Simeon 2. (NDSV) |
Maki | Margarita Gómez-Acebo y Cejuela (g. 1962) |
Börn | 5 |
Foreldrar | Boris 3. Búlgaríukeisari og Jóhanna af Ítalíu |
Háskóli | Valley Forge Military Academy and College |
Starf | Stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Simeon er eini eftirlifandi einstaklingurinn sem hefur borið titilinn zar. Hann er jafnframt annar tveggja eftirlifandi þjóðarleiðtoga frá árum seinni heimsstyrjaldarinnar (ásamt Tenzin Gyatso, 14. Dalai Lama) og annar tveggja fyrrum konunga sem hafa seinna komist til valda sem leiðtogar lýðræðislega kjörinnar ríkisstjórnar (ásamt Norodom Sihanouk frá Kambódíu).