Kambódía
ríki í Suðaustur-Asíu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Kambódía er land í Suðaustur-Asíu með landamæri að Taílandi í vestri, Laos í norðri og Víetnam í austri. Í suðri á landið strandlengju að Taílandsflóa.
Konungsríkið Kambódía | |
ព្រះរាជាណាចក្រកម្ពុជា Preăh Réachéanachâkr Kâmpŭchea | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: ជាតិ សាសនា ព្រះមហាក្សត្រ Chéat, Sasna, Preăh Môhaksăt Þjóð, trú, konungur | |
Þjóðsöngur: Nokoreach | |
Höfuðborg | Phnom Penh |
Opinbert tungumál | Kambódíska |
Stjórnarfar | þingbundin konungsstjórn |
Konungur | Norodom Sihamoni |
Forsætisráðherra | Hun Manet |
Sjálfstæði | frá Frakklandi |
• Yfirlýst | 1949 |
• Viðurkennt | 9. nóvember 1953 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
88. sæti 181.035 km² 2,5 |
Mannfjöldi • Samtals (2019) • Þéttleiki byggðar |
73. sæti 15.552.211 87/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2019 |
• Samtals | 76,635 millj. dala (102. sæti) |
• Á mann | 4.645 dalir (141. sæti) |
VÞL (2019) | 0.594 (144. sæti) |
Gjaldmiðill | ríal (KHR) |
Tímabelti | UTC+7 |
Þjóðarlén | .kh |
Landsnúmer | +855 |
Opinbert nafn landsins á khmer er Preăh Réachéanachâkr Kâmpŭchea (umskrifað með latneskum bókstöfum), þ.e. Konungsríkið Kambódía. Í daglegu tali nefna landsmenn landið „Kampútsea“. Á vesturlöndum er hins vegar nafnið „Kampútsea - Kampuchea“ tengt stjórnatíma Rauðu khmeranna 1975–79.
Íbúafjöldi er rúmlega 13 miljónir.[1] Höfuðborg og jafnframt stærsta borg landsins er Phnom Penh.
Flestir íbúar Kambódíu eru theravada búddhistar en þar búa auk þess allmargir múslimar sem nefndir eru Cham, Kínverjar, Víetnamar og aðrir minnihlutahópar.
Landslag og atvinnulíf einkennist mjög af tveimur miklum vatnakerfum, Mekong-fljótinu og Tonle Sap-fljótinu. Fyrir utan að hrísgrjónaræktunin er mjög háð þessum vatnakerfum eru fiskveiðar í þeim ein aðalundirstaða í mataræði almennings.
Fyrir utan landbúnað og fiskiveiðar eru helstu atvinnugreinar í Kambódíu saumur á fatnaði til útflutnings, ferðaþjónusta og byggingarstarfsemi.