Suðurskautslandið
Heimsálfa / From Wikipedia, the free encyclopedia
Suðurskautsland eða Antarktíka (stundum kallað „Suðurheimskautslandið“) er syðsta heimsálfa jarðarinnar og er suðurpóllinn á henni.[1] Það er á suðurhveli jarðar, að miklu leyti fyrir sunnan suðurheimskautsbaug og er umlukið Suður-Íshafinu. Suðurskautslandið er um það bil 14 milljón ferkílómetrar og því fimmta stærsta heimsálfan að flatarmáli á eftir Asíu, Afríku, Norður-Ameríku og Suður-Ameríku.[2] Af flatarmáli Suðurskautslandsins eru 98% undir jökulís, sem er að meðaltali 1,6 kílómetra þykkur.
Að meðaltali er Suðurskautsland kaldasta, þurrasta og vindasamasta heimsálfan og að auki hálendust þeirra allra að meðaltali. Vegna þess hversu úrkoman er lítil annars staðar en við strendurnar, er meginland álfunnar að þeim undanskildum fræðilega séð stærsta eyðimörk í heimi. Ekkert fólk hefur varanlega búsetu á Suðurskautslandinu og þar eru engin ummerki um núverandi eða forsögulegar byggðir manna. Þar lifa aðeins plöntur og dýr sem þola kulda vel, til dæmis mörgæsir, nokkrar tegundir hreifadýra, mosar, fléttur og margar tegundir þörunga.[3][4] Þótt oft sé litið á mörgæsir sem einkennistegund á Suðurskautslandinu, eru aðeins fimm af 17 tegundum mörgæsa sem lifa þar,[5] og aðeins tvær sem halda sig við strönd meginlandsins (hinar þrjár eru við nyrsta oddann, næst Eldlandi).
Þrátt fyrir að rekja megi goðsagnir og getgátur um Terra Australis („landið í suðri“) aftur í fornöld, er almennt viðurkennt að Suðurskautslandið hafi fyrst sést í rússneskum leiðangri árið 1820 sem Mikhail Lazarev og Fabian Gottlieb von Bellingshausen fóru fyrir. John Davis steig mögulega fyrstur manna fæti á Suðurskautslandið, þann 7. febrúar 1821. Hins vegar var heimsálfunni gefinn lítill gaumur fram á 20. öldina vegna óblíðrar veðráttu, skorts á auðlindum og einangrunar. Fyrstu menn sem komust á segulpólinn voru meðlimir Nimrod-leiðangursins 1909, og fyrsti leiðangurinn sem komst á suðurpólinn var norskur leiðangur Roald Amundsen árið 1911.
Sjö ríki hafa gert tilkall til landsvæða á Suðurskautslandinu, en tilkall þeirra er ekki almennt viðurkennt af alþjóðasamfélaginu.[6] Um 30 lönd koma að stjórn Suðurskautslandsins gegnum aðild sína að Suðurskautslandssáttmálanum frá 1959. Samkvæmt honum eru hernaðarumsvif, námavinnsla, kjarnorkusprengingar og geymsla á kjarnorkuúrgangi bönnuð. Helsta starfsemi á Suðurskautslandinu er ferðaþjónusta, fiskveiðar og vísindarannsóknir. Yfir sumarmánuðina dvelja um 5000 manns á hinum ýmsu rannsóknarstöðvum, en aðeins um 1000 eru þar yfir vetrarmánuðina. Þrátt fyrir það hve Suðurskautslandið er afskekkt, hafa athafnir manna mikil áhrif þar í gegnum mengun, ósoneyðingu og loftslagsbreytingar.