2020 aðgerð-ævintýri lifun hryllingi tölvuleikur þróað af Naughty Dog, leikurinn er framhald The Last of Us From Wikipedia, the free encyclopedia
The Last of Us Part II er hrollvekju- og spennuleikur hannaður af Naughty Dog fyrir PlayStation 4. Leikurinn er framhald af The Last of Us sem kom út árið 2013 fyrir PlayStation 3. Leikurinn kom út 19. júní 2020. Upphaflega átti leikurinn að koma út þann 29. maí 2020 en var frestað vegna kórónuveirufaraldursins.
Einkennismerki leiksins | |
Framleiðsla | Naughty Dog |
Útgáfustarfsemi | Sony Interactive Entertainment |
Leikjaröð | The Last of Us |
Tilkynningardagur | 3. desember 2016 |
Útgáfudagur | 19. júní 2020 |
Tegund | Ævintýraleikir Hululeikur Hrollvekja |
Aldursmerking | ESRB: M —Mature PEGI: 18 |
Sköpun | |
Leikstjórn | Neil Druckmann Anthony Newman Kurt Margenau |
Hönnun | Emilia Schatz Richard Cambier |
Handrit | Neil Druckmann Halley Gross |
Tæknileg gögn | |
Leikjatölva | PlayStation 4 |
Spilunarmöguleikar | Einspilun |
Tungumál | Enska |
Geymslumiðill | Blu-ray Disc, stafræn dreifing í PlayStation Store |
Inntakstæki | DualShock 4 |
Opinber vefsíða | |
The Last of Us Part II á Wikimedia Commons |
Í leiknum spilar maður sem Ellie í staðinn fyrir Joel og þarf maður að lifa af í Bandaríkjunum eftir hrun vestrænnar menningar vegna pöddusveppafaraldursins. Sem Ellie þarf maður að berjast bæði við sýkt og venjulegt mannfólk þegar hún leggur af stað í hefndarferð til Seattle.
Sagan gerist fjórum árum eftir fyrsta leikinn þar sem Ellie (Ashley Johnson) og Joel (Troy Baker) hafa fundið nýtt líf hjá Tommy, bróður Joels, í Jackson. Ellie kynnist nýjum vinum, þar á meðal Dinu (Shannon Woodworth) sem hún hefur ástarsamband við.
Einn dag þegar Joel og Tommy eru í eftirlitsferð um Jackson, eru þeir handsamaðir af skæruliðahópi frá Seattle að nafni Washington Liberation Front (WLF). Einn meðlimurinn, Abby (Laura Bailey), á eitthvað ógert með Joel og pyntir hann. Ellie reynir að koma þeim til bjargar en er handsömuð og neyðist að horfa upp á Abby berja Joel til dauða með golfkylfu. Hópurinn þyrmir Ellie og Tommy og heldur af stað heim til Seattle.
Nokkrum dögum seinna ákveður Ellie að halda til Seattle til að drepa alla WLF-meðlimina sem áttu aðild að morði Joels. Dina fer með henni og saman reyna þær að fá allt voðafólkið til svara fyrir gjörðir sínar hvað sem það kostar.
(Þess má geta að allir leikararnir eru bæði radd- og hreyfiföngunarleikarar)
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.