Võ Nguyên Giáp
Víetnamskur hershöfðingi (1911–2013) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Võ Nguyên Giáp (25. ágúst 1911 – 4. október 2013) var víetnamskur hershöfðingi og stjórnmálamaður. Hann var leiðtogi Alþýðuhers Víetnams á tíma fyrri Indókínastyrjaldarinnar og varnarmálaráðherra á tíma Víetnamstríðsins. Giáp leiddi Víetnam til sigurs í báðum þessum stríðum, fyrst á móti Frökkum og síðan á móti Bandaríkjamönnum.
Staðreyndir strax Ritari hernaðarnefndar Kommúnistaflokks Víetnams, Eftirmaður ...
Võ Nguyên Giáp | |
---|---|
Ritari hernaðarnefndar Kommúnistaflokks Víetnams | |
Í embætti 1946–1978 | |
Eftirmaður | Lê Duẩn (sem aðalritari) |
Yfirmaður Alþýðuhers Víetnams | |
Í embætti 2. mars 1946 – 30. apríl 1975 | |
Forveri | Embætti stofnað |
Eftirmaður | Tôn Đức Thắng (sem forseti Víetnams) |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 25. ágúst 1911 Lệ Thủy, Quảng Bình, franska Indókína |
Látinn | 4. október 2013 (102 ára) Hanoi, Víetnam |
Stjórnmálaflokkur | Kommúnistaflokkur Víetnams |
Maki | Nguyễn Thị Quang Thái (g. 1938, lést) Đặng Thị Bích Hà (g. 1946) |
Börn | 5 |
Undirskrift |
Loka
Giáp er sér í lagi kunnur fyrir sigur sinn í orrustunni við Điện Biên Phủ árið 1954, sem leiddi til þess að Frakkar drógu her sinn burt frá Indókína. Giáp skipulagði jafnframt árið 1968 Tet-sóknina, sem er gjarnan talin hafa sannfært Bandaríkjamenn um að Víetnamstríðið væri ekki vinnanlegt á vígvellinum. Sigrar Giáps gegn bæði Frakklandi og Bandaríkjunum gerðu hann að einum frægasta hershöfðingja síns tíma.[1]