Vestmannaeyjar
sveitarfélag og eyjaklasi suður af Íslandi / From Wikipedia, the free encyclopedia
Vestmannaeyjar eru eyjaklasi suður af Íslandi, samtals 15 eyjar og um 30 sker og drangar. Syðsta eyjan er Surtsey og sú nyrsta er Elliðaey. Heimaey er stærst eyjanna og sú eina sem er byggð, en þar er Vestmannaeyjabær með um 4.639 íbúa (2024). Heitið Vestmannaeyjar er oft notað sem samheiti yfir Vestmannaeyjabæ.
Staðreyndir strax Vestmannaeyjabær, Land ...
Vestmannaeyjabær | |
---|---|
Hnit: 63°26′00″N 20°17′00″V | |
Land | Ísland |
Kjördæmi | Suðurkjördæmi |
Þéttbýliskjarnar | Vestmannaeyjabær |
Stjórnarfar | |
• Bæjarstjóri | Íris Róbertsdóttir |
Flatarmál | |
• Samtals | 16 km2 |
• Sæti | 60. sæti |
Mannfjöldi (2024) | |
• Samtals | 4.444 |
• Sæti | 13. sæti |
• Þéttleiki | 277,75/km2 |
Póstnúmer | 900, 902 |
Sveitarfélagsnúmer | 8000 |
Vefsíða | vestmannaeyjar |
Loka
Á Vestmannaeyjum búa rúmlega fjögur þúsund manns, sem þýðir að Vestmannaeyjar eru 12. fjölmennasta byggðin á Íslandi. Sjávarútvegur er helsta atvinnugrein Vestmanneyinga. Hin árlega Þjóðhátíð um Verslunarmannahelgi er ein vinsælasta útihátíðin á Íslandi, hana sækja þúsundir manna á hverju ári.
Sex einstaklingar hafa synt hið svokallaða Eyjasund, þ.e. frá Heimaey til Landeyjasands[1].