![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/2/22/Lighthouse_-_Thiersch.png/640px-Lighthouse_-_Thiersch.png&w=640&q=50)
Vitinn í Faros við Alexandríu
Viti í Egyptalandi frá 3. öld f.Kr / From Wikipedia, the free encyclopedia
Vitinn mikli eða Vitinn í Faros var viti, sem stóð á eyjunni Faros við höfn Alexandríu í Egyptalandi, því stundum kallaður „Faros Alexandríu“, og var reistur á 3. öld f.Kr. Hann telst eitt af sjö undrum veraldar og fyrir utan Pýramídann mikla í Gisa, sem enn stendur, var hann síðastur af hinum sex undrum veraldar að falla. Því eru tiltölulega góðar heimildir til um vitann bæði hvað varðar staðsetningu og útlit.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/2/22/Lighthouse_-_Thiersch.png/640px-Lighthouse_-_Thiersch.png)
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/3b/Lighthouse_of_Alexandria_in_Changsha.jpg/640px-Lighthouse_of_Alexandria_in_Changsha.jpg)