From Wikipedia, the free encyclopedia
William Butler Yeats (13. júní, 1865 – 28. janúar, 1939) var írskt skáld og leikskáld sem var einn af frumkvöðlum írsku bókmenntaendurreisnarinnar fyrir aldamótin 1900. Hann var einn af stofnendum Abbey Theater leikhússins í Dublin 1904. Hann var einnig mikill áhugamaður um dulspeki og guðspeki og kynnti sér Hindúatrú. Hann fékk sæti í írsku öldungadeildinni 1922. Þótt hann sé eitt af lykilskáldum á ensku á 20. öldinni fékkst hann ekki við óbundið form líkt og svo mörg önnur módernísk skáld heldur orti undir hefðbundnum bragarháttum. Hann hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1923.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.