Woodstock
From Wikipedia, the free encyclopedia
Woodstock var tónlistarhátíð sem haldin var í Bethel í New York-fylki dagana 15. – 18. ágúst árið 1969. Hátíðin hefur oft verið kölluð „Hátíð tónlistar og friðar“ og er hún talin einn merkasti viðburður tónlistarsögunnar.[heimild vantar] Hátíðin var kynnt á þennan hátt: „Woodstock Music Festival; An Aquarian Exposition: Three Days of Peace and Music“. Ekki leikur vafi á öðru en að slagorðið hafi haft áhrif því að á hátíðina mættu um hálf milljón manns. Allt þetta fólk var mætt á 600 ekru bóndabýli í þeim tilgangi að vera í tengingu við náttúruna, hlusta á tónlist og njóta friðarins.[1] Á þessum tímum var hugtakið friður mjög áberandi í samfélaginu og fólk lagði mikið upp úr því að halda hann. Atburðir eins og Víetnamstríðið spiluðu þar virkan þátt en hátíðin hefur með tíð og tíma orðið eins konar táknmynd fyrir hippatímabilið. Skipuleggjendur hátíðarinnar voru fjórir ungir menn John Roberts, Joel Rosenman, Artie Kornfeld og Mike Lang, sá yngsti var þá 27 ára gamall.
32 tónlistarmenn komu fram á hátíðinni og spiluðu þeir á sviði undir berum himni þar sem skiptust á skin og skúrir.[2] Þar á meðal voru þekktir tónlistarmenn, til dæmis Janis Joplin, Jimi Hendrix, hljómsveitin the Who, Canned Heat og San Francisco hljómsveitin Jefferson Airplane.