Ólafur digri
konungur Noregs 1015-1028 From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Ólafur Haraldsson (einnig Ólafur digri og síðar Ólafur helgi; 995 – 29. júlí 1030) var konungur Noregs 1015-1028.

Ólafur kynntist kristnum sið í víkingaferðum og lét skírast í Rúðuborg í Frakklandi. Hann sneri aftur til Noregs og sameinaði landið með hernaði og samningum og lét krýna sig til konungs yfir öllum Noregi. Norskir ættarhöfðingjar gerðu uppreisn gegn honum í nafni Knúts ríka, Danakonungs. Ólafur flúði til Garðaríkis og leitaði hælis hjá Jarisleifi konungi sem kvæntur var systur hans. Hann reyndi að ná völdum aftur en féll 29. júlí 1030 í Stiklastaðarbardaga. Ólafur helgi var jarðsettur í Þrándheimi.
Ólafur er á myndum sýndur í herklæðum með ríkisepli, veldissprota og bikar - bryntröll og stríðsöxi sem voru þau vopn sem urðu honum að bana. Undir fótum hans liggur oft dreki með mannshöfuð og kórónu sem tákn um hina sigruðu heiðni.
Remove ads
Tenglar
- Borrelli, Antonio @ Santi, beati e testimoni: Sant' Olav. Skoðað 8. september 2010.
- Ólafs saga helga hjá Netútgáfunni.
- Ólafs saga helga á Wikiheimild (upphaflega fengin frá Netútgáfunni).
- Müller, séra Olav @ Den Katolske Kirke i Norge: Olav den Hellige. Skoðað 8. september 2010.

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Ólafi digra.
Fyrirrennari: Sveinn tjúguskegg (Eiríkur jarl) (Sveinn jarl) |
|
Eftirmaður: Knútur ríki (Hákon jarl) |

Remove ads
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads