829

ár From Wikipedia, the free encyclopedia

Remove ads

829 (DCCCXXIX í rómverskum tölum) var 29. ár 9. aldar sem hófst á föstudegi, samkvæmt júlíska tímatalinu.

Staðreyndir strax Árþúsund:, Aldir: ...

Atburðir

  • 2. október - Teófílos keisari tók við völdum í Konstantínópel.
  • Október - Nær allur floti keisaradæmisins fórst í orrustunni við Þasos móti Serkjum frá Krít.
  • Ecgberht konungur Wessex réðist inn í Mersíu og hrakti Wiglaf frá völdum og var hylltur sem Bretavaldur (konungur Breta).
  • Víkingaforinginn Hálfdán svarti tók við völdum í Ögðum og skipti ríkjum í Vestfold með Ólafi Geirstaðaálfi, hálfbróður sínum.
  • Áin Níl fraus.
  • Konungur Nanzhao í Kína réðist á borgina Chengdu í Sesúan.
  • Loðvík guðhræddi sendi frankverska ábótann Ansgar sem trúboða til Svíþjóðar.
Remove ads

Fædd

  • 8. september - Ali al-Hadi, sjía ímam.
  • Al-Nasa'i, hadíðufræðimaður.
  • Lu Yan, kanslari Tangveldisins.
  • Yahya ibn Muhammad, soldán í Marokkó (d. 864).

Dáin

  • 1. júní - Li Tongjie, herforingi Tangveldisins.
  • 30. júní - Shi Xiancheng, herforingi Tangveldisins.
  • 2. október - Mikael 2. keisari Austrómverska ríkisins (f. 770).
  • Abu al-Razi Muhammad ibn Abd al-Hamid, landstjóri í Jemen.
  • Giustiniano Participazio, hertogi í Feneyjum.
  • Li Yi, kínverskt skáld.
  • Muiredach mac Ruadrach, konungur Leinster.
Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads