Alberto Ohaco
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Alberto Bernardino Ohaco (f. 12. janúar 1889 - d. 8. mars 1950) var knattspyrnumaður frá Argentínu. Hann var í landsliði þjóðar sinnar sem lék á tveimur fyrstu Suður-Ameríkukeppnunum og er einn dáðasti leikmaður í sögu Racing Club.
Remove ads
Líf og ferill
Alberto Ohaco hóf að leika með aðalliði Racing Club aðeins sextán ára að aldri, en faðir hans var einn af stofnendum félagsins. Racing Club var þá í þriðju deild en efldist hratt á þessum árum og komst í efstu deild árið 1911 með Ohaco innanborðs. Hann lék allar stöður á vellinum, jafnt í vörn sókn og jafnvel í marki, en var þó oftast nær framherji.
Racing Club átti sannkallað blómaskeið á öðrum áratugnum og í byrjun þess þriðja. Félagið varð átta sinnum argentínskur meistari á árabilinu 1913 til 1921 og kom Ohaco við sögu í öllum titlunum. Að auki vann félagið ýmsar bikarkeppnir og keppnir við lið frá grannríkinu Úrúgvæ og urðu titlar Ohaco því alls tuttugu talsins.
Ohaco lék 23 leiki með argentínska landsliðinu á tímabilinu 1912 til 1918. Í fyrstu Suður-Ameríkukeppninni sem fram fór í Argentínu 1916 skoraði hann fyrsta mark þjóðar sinnar í leik gegn Síle og varð markahæstur heimamanna á mótinu með tvö mörk. Í næstu keppni árið eftir skoraði hann aftur tvö mörk, bæði úr vítaspyrnu gegn Brasilíumönnum.
Alberto Ohaco þótti bæði prúður og tignarlegur á velli, sem skapaði honum aðdáun stuðningsmanna. Það jók einnig á dulúð hans að á flestum liðsmyndum af Racing Club var hann með slútandi hatt á höfði, sem ýtti undir sögusagnir um að hann væri að flýja skuggalega fortíð. Veruleikinn var þó sá að hann stóð í stappi við ljósmyndara félagsins sem hafði neitað að gefa leikmanninum afrit af myndum og kaus Ohaco því að hylja andlit sitt í hefndarskyni.
Hann lést árið 1950, 61 árs að aldri.
Remove ads
Heimildir
- Fyrirmynd greinarinnar var „Alberto Ohaco“ á spænsku útgáfu Wikipedia. Sótt 19. desember 2023.
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads
