Jóhannes Páll 1.

Páfi kaþólsku kirkjunnar árið 1978 From Wikipedia, the free encyclopedia

Jóhannes Páll 1.
Remove ads

Jóhannes Páll 1. (latína; Ioannes Paulus I; 17. október 1912 – 28. september 1978), fæddur undir nafninu Albino Luciani, var páfi kaþólsku kirkjunnar í einn mánuð árið 1978. Jóhannes Páll 1. er síðasti páfinn fram á okkar daga sem fæddist á Ítalíu og páfatíð hans var ein sú stysta í sögu kaþólsku kirkjunnar. Hann er stundum kallaður „páfinn brosmildi“ (ítalska: Il Papa del Sorriso) eða „septemberpáfinn“.

Staðreyndir strax Páfi, Forveri ...

Albino Luciani, sem þá hafði verið erkibiskup Feneyja frá árinu 1969,[1] var kjörinn páfi eftir fjórar atkvæðagreiðslur þann 28. ágúst árið 1978. Luciani tók sér nafnið Jóhannes Páll í höfuðið á síðustu tveimur páfum á undan sér, Jóhannesi 23. og Páli sjötta.[2][3] Á þeim stutta tíma sem Jóhannes Páll 1. sat á páfastól þótti hann hleypa ferskum andvara á embættið með hógværð sinni og alþýðleika. Hann lét t. d. ekki krýna sig samkvæmt hefð heldur lét hann halda sérstaka vígslumessu og í stað þess að láta bera sig þangað í hásæti kom hann gangandi.[4]

Jóhannes Páll 1. lést aðeins 33 dögum eftir að hafa sest á páfastól. Skyndilegur dauði páfans leiddi fljótt til ýmissa samsæriskenninga um að hann hefði verið myrtur vegna viðleitni sinnar til að koma á umbótum í stjórnkerfi kaþólsku kirkjunnar.[5][6]

Jóhannes Páll 1. er til þessa dags síðasti ítalski páfi kaþólsku kirkjunnar. Árið 2021 viðurkenndi Vatíkanið kraftaverk eignað Jóhannesi Páli, sem var skref í átt að því að taka hann í dýrlingatölu.[7]

Remove ads

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads