Allt um Evu

kvikmynd From Wikipedia, the free encyclopedia

Allt um Evu
Remove ads

Allt um Evu (enska: All About Eve) er bandarísk kvikmynd frá árinu 1950 með Bette Davis í aðalhlutverki. Leikstjóri myndarinnar var Joseph L. Mankiewicz. Hún er byggð á smásögu eftir Mary Orr úr tímaritinu Cosmopolitan frá árinu 1946 sem heitir „The Wisdom of Eve“.

Staðreyndir strax All About Eve, Leikstjóri ...

Bette Davis fer með aðalhlutverk í myndinni sem Margo Channing, gömul Broadway-stjarna. Anne Baxter leikur Eve Harrington, ungan aðdáanda Channing sem verður hluti af lífi hennar og ógnar ferli hennar og samböndum. Myndin var eitt af fyrstu hlutverkum Marilyn Monroe sem seinna varð stórstjarna.

Myndin fékk frábæra dóma þegar hún kom út og var tilnefnd til 14 Óskarsverðlauna (sem var met í tilnefningum þar til Titanic kom út árið 1997) og vann sex, þar á meðal sem besta kvikmynd. Enn í dag er hún eina myndin sem hefur fengið fjórar Óskarstilnefningar fyrir leikkonur. Myndin var svo valin sextánda besta bandaríska bíómynd allra tíma af American Film Institute.[1]

Remove ads

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads