Atlantis

From Wikipedia, the free encyclopedia

Atlantis
Remove ads

Atlantis er eyja úr heimi þjóðsögunnar sem óhægt er að staðsetja á landakorti. Hún á að hafa sokkið í sæ 9600 árum fyrir Krist.[1] Menn hafa þó löngum reynt að staðsetja eyjuna. Í Tímajosi eftir Platon kemur sagan af Atlantis fyrir í fyrsta sinn og sömuleiðis í ókláruðu verki hans Krítías. Þar er Atlantis kúgandi ríki á vestanverðu Miðjarðarhafi sem á í stríði við Aþenu. Hugmyndina um að Atlantis hafi verið einhvers konar fyrirmyndarríki má ef til vill rekja til rits Francis Bacons Hið nýja Atlantis. Sumir halda að hún hafi verið staðsett nákvæmlega í Atlantshafinu.

Thumb
Kort Athanasius Kircher af Atlantis á miðju Atlantshafi. From Mundus Subterraneus, gefið út í Amsterdam 1669. Á kortinu er suður upp.
Remove ads

Neðanmálsgreinar

Tenglar

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads