Ayman al-Zawahiri
Egypskur hryðjuverkamaður og leiðtogi Al-Kaída From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Ayman Mohammed Rabie al-Zawahiri (19 júní 1951[1] – 31. júlí 2022) var egypskur hryðjuverkamaður sem leiddi hryðjuverkasamtökin al-Kaída frá 2011 til 2022. Hann var ennfremur fyrrverandi leiðtogi og meðlimur annara íslamskra hryðjuverkasamtaka sem hafa gert árásir í Norður-Ameríku, Asíu, Afríku og miðausturlöndum.
Árið 2012 ákallaði hann múslima að ræna vestrænum ferðalöngum í löndum múslima.[2] Frá árásunum á tvíburaturnana bauð Bandaríkjastjórn 25 milljón Bandaríkjadala í verðlaunafé fyrir ábendingar sem gætu leitt til handtöku hans.[3]
Zawahiri tók við forystu al-Kaída eftir að Osama bin Laden var drepinn í hernaðaraðgerð Bandaríkjamanna árið 2011. Hann var leiðtogi samtakanna í ellefu ár, þar til hann var einnig drepinn í atlögu bandarískra hermanna í Afganistan þann 31. júlí 2022.[4]
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads