Bókhveiti
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Bókhveiti (fræðiheiti: Fagopyrum esculentum)[1] er jurt af súruætt sem er ræktuð vegna frækorna sinna sem líkjast hveiti og byggi, og tið að þekja. Skyld og áþekk, en bitrari tegund, Fagopyrum tataricum, er ræktuð í Asíu en er sjaldgæfari í Evrópu og Norður Ameríku er einnig kölluð bókhveiti.

Remove ads
Orðsifjar
Nafnið bókhveiti er dregið af einhverri útgáfu orðanna "buckwheat", "beech wheat" og boecweite sem er líklega dregið af líkingu fræjanna við beykifræ, og því að það var notað eins og hveiti.[2]
Saga

Upprunaleg tegund bókhveitis er F. esculentum ssp. ancestrale. F. homotropicum er ófrjó með F. esculentum og villi afbrigði hafa sameiginlega útbreiðsla, í Yunnan, í suðvestur Kína. Upphafleg villitegund tatarabókhveitis er F. tataricum ssp. potanini.[3]
Bókhveiti var fyrst ræktað inn í landi í Suðaustur Asíu, hugsanlega um 6000 fyrir krist, og breiddist þaðan út til Mið Asíu og Tíbet, og þaðan til Miðausturlanda og Evrópu.[4] Bókhveiti er fyrst skráð í Evrópu í Finnlandi um 5300 BCE[5] sem fyrstu ummerki um arðrækt, og í Balkanskaga um 4000 BCE.


Remove ads
Ræktun
Bókhveiti þarf stuttan ræktunartíma, vex vel í ófrjóum jarðvegi eða súrum, en þarf gott frárennsli. Of mikill áburður, sérstaklega nitur dregur úr uppskeru. Í heitu loftslagi er aðeins hægt að rækta það með því að sá því seint, svo það geti blómstrað í svölu veðri. Nærvera frjóbera (t.d alibýflugur) auka mjög uppskeru. Blómsafinn gefur af sér dökkt hunang. Bókhveiti er stundum notað sem grænn áburður, til varnar jarðvegseyðingu eða sem fóður.
Plantan er með greinótta rót með megin stólparót sem nær niður í raka og næringu dýpri laga jarðvegsins.[6] Bókhveiti er með þríhyrnd fræ og myndar blóm sem eru yfirleitt hvít, en geta líka verið bleik eða gul.[7] Bókhveiti myndar greinar auðveldlega, í stað þess að koma með hliðarsprota eða rótarskot.[6]
Bókhveiti er ræktað þar sem ræktunartímabilið er stutt, annað hvort sem seinni uppskera tímabilsins, eða vegna erfiðs loftslags. Það kemur fljótt til sem dregur úr samkeppni við illgresi.[8] Bókhveiti þarf yfirleitt aðeins 10 til 12 viknur til uppskeru[9] og getur verið ræktað hátt til fjalla eða norðarlega.[10] Það verður 75 til 125 sm hátt.[8]
Næringarefni
Þar sem bókhveiti inniheldur ekkert glútein og getur því verið í fæði fólks með glúteintengd vandamál.[11][12] Hinsvegar getur bókhveiti mengast af glúteini í vinnslu, t.d. við mölun.[11]
Þekkt er að fólk geti fengið ofnæmisviðbrögð af bókhveiti.[13] Einnig getur mikil neysla á bókhveiti valdið eitrunum vegna fagopyrina.[14] Einkenni eitrunar getur verið bólga í húð þar sem sól hefur skinið á hana, viðkvæmni við kulda, og náladoði eða doði í höndum.[15]
Remove ads
Framleiðsla


Árið 2016 var heimsframleiðslan 2.4 milljón tonn, með Rússland með 50% af heimsframleiðslunni og Kína með 17%.[16]
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads