Burnley F.C.
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Burnley F.C. er knattspyrnulið í ensku úrvalsdeildinni úr borginni Burnley norður af Manchester. Heimavöllur þess er Turf Moor. Félagið var stofnað árið 1882 og hefur orðið enskur meistari tvisvar, árin 1921 og 1960. Gælunafn liðsins er The Clarets sem vísar í vínrauða litinn á búningunum.
Á tímabilinu 2017-2018 náði liðið evrópusæti; 7. sæti. Sean Dyche stýrði Burnley frá 2012-2022 og var með liðið í ensku úrvalsdeildinni í 6 ár. Honum var sagt upp þegar 8 leikir voru eftir af tímabilinu 2021-2022 og liðið var í fallsæti. Liðið hefur fallið í ensku meistaradeildina og komist upp í ensku úrvalsdeildina síðustu ár.
Jóhann Berg Guðmundsson, miðherji og landsliðsmaður spilaði með félaginu frá 2016 til 2024.
Remove ads
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads