Mið-Evróputími
tímabelti í Evrópu From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Mið-Evróputími (enska: Central European Time, skammstafaður CET, MET eða MEZ) er staðaltími sem er einni klukkustund á undan samræmdum heimstíma (UTC) og er því oft skrifaður UTC+01:00. Stór hluti Evrópu og nokkur Norður-Afríkulönd nota þennan staðaltíma. Hann er líka þekktur sem til dæmis Berlínartími, Rómartími eða Brusseltími. Öll löndin sem nota Mið-Evróputíma skipta yfir í sumartíma sem þá verður UTC+02:00.
| blár |  Staðartími Vestur-Evrópu (UTC+0)  Sumartími Vestur-Evrópu (UTC+1)  | 
| ljósblátt | Staðartími Vestur-Evrópu (UTC+0) | 
| rauður |  Staðartími Mið-Evrópu (UTC+1)  Sumartími Mið-Evrópu (UTC+2)  | 
| ólífu |  Staðartími Austur-Evrópu (UTC+2)  Sumartími Austur-Evrópu (UTC+3)  | 
| gulur | Staðartími Kalíníngrad (UTC+2) | 
| grænn | Staðartími Moskvu (UTC+3) | 
15. lengdargráða gengur gegnum miðju tímabeltisins. Í Vestur-Afríku er UTC+01:00 kallaður Vestur-Afríkutími (WAT).
Mið-Evróputími er tímabelti fyrir eftirfarandi lönd/svæði:[1]
 Albanía
 Andorra
 Austurríki
 Belgía
 Bosnía og Hersegóvína
 Danmörk
 Frakkland
 Gíbraltar (Bretland)
 Holland
 Ítalía
 Kósovó
 Króatía
 Liechtenstein
 Lúxemborg
 Malta
 Mónakó
 Norður-Makedónía
 Noregur
 Pólland
 San Marínó
 Serbía
 Slóvakía
 Slóvenía
 Spánn (ekki á Kanaríeyjum)
 Svartfjallaland
 Sviss
 Svíþjóð
 Tékkland
 Ungverjaland
 Vatíkanið
 Þýskaland
Remove ads
Sjá einnig
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads
