COVID-19

Smitsjúkdómur af völdum SARS-CoV-2 From Wikipedia, the free encyclopedia

COVID-19
Remove ads

COVID-19 er smitsjúkdómur af völdum kórónuveirunnar SARS-CoV-2. COVID-19 kom upp í Wuhan-héraði, í Kína, síðla árs 2019 og varð að kórónaveiruheimsfaraldri árið 2020.

Thumb
Starfsemi COVID-19
Thumb
Einkenni COVID-19
Thumb
Tölvugerð mynd af kórónuveirunni í rafeindasmásjá.

Veiran sem veldur COVID-19 breiðist aðallega út í gegnum úðadropa sem myndast þegar smitaður einstaklingur hóstar, hnerrar eða andar frá sér og smitast í gegnum augu, nef, munn eða kynfæri. Sjúkdómurinn hefur mismunandi áhrif eftir einstaklingum. Flestir þeir sem sýkjast fá væg eða miðlungsmikil einkenni. Sumir eru í meiri hættu á að veikjast alvarlega en aðrir, hættan eykst með aldri. Þeir sem eru 60 ára og eldri eru í aukinni hættu á að fá alvarleg einkenni. Alls hafa um 7 milljónir látist úr sjúkdóminum, svo staðfest sé, og 775 milljónir smitast í faraldrinum, en þessar tölur eru vissulega vanmetnar. Í þróunarlöndum er illa haldið utan um smit og dauðsföll.[1]

Á meðan faraldurinn gekk yfir var mikil áhersla lögð á hreinlæti, svo sem handþvott, spritt og grímunotkun eða félagsforðun. Barir og líkamsræktarstaðir lokuðu ásamt fleiru. Einnig var sett samkomubann fyrir stærri viðburði. Þá var mælt með því að almenningur héldi 2 metra fjarlægð milli sín. Sóttkví var einnig beitt fyrir þá sem annaðhvort voru í návígi við smitaðan einstakling eða fyrir þá sem komu frá hættusvæðum.

Fyrsta tilvik sjúkdómsins á Íslandi greindist þann 28. febrúar 2020.[2] Þann 17. mars voru smitin 199 á Íslandi. Um miðjan ágúst voru greind smit á Íslandi orðin um 2000 og dauðsföll vegna veirunnar 10 talsins. Sjúkdómurinn var í rénun frá lok apríl og aðeins 8 smit greindust í maí. Hins vegar fjölgaði smitum aftur um mitt sumar og aftur um haustið. Þriðja bylgja faraldursins hófst þann 11. september 2020.[3] Um miðjan október lést fyrsta manneskjan í þriðju bylgjunni úr Covid-19.[4] Hópsmit kom upp á Landakotsspítala og létust 13 af völdum þess.[5] 250 hafa alls látist á Íslandi og um 209.000 smitast eða um 56% landsmanna.

Í Bretlandi, þann 8. desember 2020, fékk fyrsti einstaklingurinn í heiminum bólusetningu, sú sprauta kom frá Pfizer. Á Íslandi fékk fyrsti einstaklingurinn sprautu þann 29. desember 2020. Önnur samþykkt bóluefni ásamt Pfizer voru m.a. Moderna og AstraZeneca.

Remove ads

Tengt efni

Tenglar

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads