Cabernet sauvignon

From Wikipedia, the free encyclopedia

Cabernet sauvignon
Remove ads

Cabernet sauvignon er ein af þekktustu vínþrúgum heims.[1] Hún er ræktuð í nær öllum rauðvínsgerðarlöndum heims við mjög ólíkar aðstæður, en er þekktust sem uppistaðan í Bordeaux-vínum frá héraðinu Bordeaux í Frakklandi. Þetta var algengasta vínræktarþrúga heims mestan hluta 20. aldar þar til merlot-þrúgan varð algengari á 10. áratug aldarinnar. Cabernet sauvignon er þó fremur nýtilkomin í sögunni. Hún varð til við blöndun tveggja vínþrúga, cabernet franc og sauvignon blanc, á 17. öld. Vinsældir sínar á þrúgan því að þakka hversu auðvelt er að rækta hana þar sem hún er með þykkt hýði og gott viðnám gegn bæði myglu og frosti, og því hve einkennandi bragð hennar heldur sér við ólíkar ræktunaraðstæður og tíðarfar.[2]

Thumb
Cabernet-þrúga.
Remove ads

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads