Alpasteingeit
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Alpasteingeit (Capra ibex) er undirtegund steingeitar sem lifir í Alpafjöllum. Búsvæði er í bröttum hlíðum nálægt snjólínu. Alpasteingeitur eru félagsdýr en kynin eru þó aðskilin nema á mökunartíma. Karldýrin eru stærri og með sveigð, stærri horn. Feldurinn er brúngrár og er hausinn styttri en á öðrum steingeitum. Lífaldur er allt að 19 ár.
Tegundin var í útrýmingarhættu eftir að hafa verið útrýmt af stórum svæðum á 19. öld. Eina búsvæðið var í Piemonte á Ítalíu og Gran Paradiso-þjóðgarðinum sem stofnaður var 1922. Frá þeim svæðum hefur tegundin verið flutt til annarra svæða í Ölpunum.
- Kvendýr.
- Steingeit á fjallasyllu.
- Kvendýr með kiðling.
- Karldýr berjast.
- Ungdýr.
Remove ads
Heimild
- Fyrirmynd greinarinnar var „Alpine ibex“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 3. mars. 2021.
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads