Tryggðakrókus
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Tryggðakrókus (fræðiheiti Crocus chrysanthus) er blómplanta af ættkvísl krókusa, ættaður frá Balkanskaga og Tyrklandi.
Hann er með skær appelsínugul skállaga blóm. Minni hnýði og blóm en en vorkrókus en myndar hann fleiri blóm á lauk en vorkrókusinn. Hæð um 3 til 4 sm. Á ensku hefur hann verið nefndur "snow crocus" vegna þess hve snemma hann blómstrar, eða um tvemur vikum á undan vorkrókusnum og oft upp í gegn um snjó síðvetrar eða snemma vors. Blöðin eru mjó með silfraðri miðrönd. [1] Latneska heiti hanns, chrysanthus, þýðir gullinblómstrandi.[2]

Remove ads
Ræktunarafbrigði
Ræktunarafbrigði tryggðakrókus eru úrval af Crocus chrysanthus og bendinga þessarar tegundar við nokkrar undirtegundir af páskakrókus og Crocus aerius. Gul afbrigði eru úrval af Crocus chrysanthus. Blá og hvít afbrigði eru blendingar við Crocus biflorus.[3]
- ‘Advance’: gulir að innan, að utan fjólubláir
- ‘Ard Schenk’: hvítir með bronslituðum hálsi
- ‘Blue Pearl’:[4] fölblár með bronsgulum hálsi og grunni; sterkblár að utan, fölari að innan og með gulum bletti neðst
- ‘Blue Peter’: miðnæturblár að utan, fölblár að innan
- ‘Cream Beauty’:[5] rjómagulur með bronslituðum hálsi
- ‘Goldilocks’: smjörgulur með bronslituðu munstri (fjöður)
- ‘Ladykiller’:[6] hvítt að innan og djúp purpurablár að utan með hvítum jaðri
- ‘Prince Claus’: hvítur, blue flash on exterior
- ‘Romance’: að innan rjómalitur, að utan bláleitur
- ‘Saturnus’: gulur að innan, dökk purpuralitur að utan
- ‘Skyline’: ljósblár að innan, skærblár að utan
- ‘Snow Bunting’:[7] hvítur að innan, að utan rjómahvít með gulgrænum "fjöðrum"; bronslitaður háls
- ‘Zwanenburg Bronze’:[8] gullgulur að innan, bronslitaður að utan
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads