Snækrókus

From Wikipedia, the free encyclopedia

Snækrókus
Remove ads

Snækrókus eða Balkankrókus (fræðiheiti: Crocus tommasinianus),[1][2] er planta af ættkvísl krókusa. Hann er uppruninn á Balkanskaga og nefndur eftir grasafræðingnum Muzio G. Spirito de Tommasini (1794-1879) sem var borgarstjóri í Austurrísk-Ungversku borginni Trieste sem nú tilheyrir Ítalíu.[3] Íslenska heitið snækrókus er til komið vegna þess að hann er meðal fyrstu krókusa til að blómstra á vorinn.

Staðreyndir strax Vísindaleg flokkun, Tvínefni ...
Remove ads

Lýsing

Snækrókus er ein af smærri ræktuðu tegundum krókusa. Blómin eru grönn, um 2 - 4 sm löng, með hvítri krónupípu. Krónublöð (6) föl silfur-fjólublá til rauðfjólublá en ytri krónublöðin geta verið með silfurblæ pg með dekkri endum. Afbrigðið, C. tommasinianus f. albus, er hvítt og hæð þess um 7 til 8 sm. Honum er oft plantað í stórum breiðum í einka og almenningsgörðum en sáir sér einnig auðveldlega sjálfur sem hefur gefið honum stöðu sem illgresi í margra augum. Litningatala hanns er 2n = 16.[4]

Remove ads

Afbrigði

Thumb
Breiða af Elfenkrokus (Snækrókus) í Planten und Blumen, Hamburg

Tilvísanir

Tenglar

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads