Degli

Trjátegund í flokki barrtrjáa From Wikipedia, the free encyclopedia

Degli
Remove ads

Degli (fræðiheiti: Pseudotsuga menziesii), einnig kallað döglingsviður eða douglas-greni, er barrtré upprunið frá vesturhluta Norður-Ameríku. Tréð er notað í timburiðnaði. Það getur orðið með hærri trjám heims eða um 123 metrar að hæð. [4]

Staðreyndir strax Ástand stofns, Vísindaleg flokkun ...

Tvö afbrigði eru af degli:

  • Stranddegli (Pseudotsuga menziesii var. menziesii) sem vex frá Bresku-Kólumbíu og suður að Kaliforníu. Það er önnur hæsta tegund barrtrjáa í heiminum og getur orðið yfir 100 metra[5]
  • Fjalladegli (P. menziesii var. glauca) sem vex frá fjalllendi í Bresku-KólumbíuMexíkó þar sem dreifing er strjál og jafnvel er það talið vera annað afbrigði.
Remove ads

Á Íslandi

Degli hefur vaxið vel í Hallormsstaðaskógi og náð 20 metrum en það er erfitt í ræktun á Íslandi. Við Bjarmastíg 13 á Akureyri stóð degli sem var yfir 10 metra hátt.[6] Degli vex við hærri sumarhita og lengri sumur en Ísland hefur að bjóða. [7] Það er viðkvæmt fyrir áföllum í æsku en áhugavert væri að reyna ræktun þess í auknum mæli undir skermi, sem kallað er. Þá eru litlar trjáplöntur gróðursettar í eldri skógi sem hlífir þeim við vor- og haustfrostum og öðrum áföllum í æsku. Hæstu tré hafa náð 20 metrum [8][9].

Árið 2021 fundust fyrstu sjálfsáðu degliplönturnar í Stálpastaðaskógi.[10]

Remove ads

Svipmyndir

Tengt efni

Tengill

Kjarnaskógur.is - Degli

Heimildir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads