Dina Boluarte
Forseti Perú From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Dina Ercilia Boluarte Zegarra (f. 31. maí 1962) er perúskur lögfræðingur og stjórnmálamaður sem hefur verið forseti Perú frá 7. desember 2022. Hún var áður varaforseti landsins frá árinu 2021 til 2022 og hefur verið embættismaður hjá þjóðskrá Perú frá árinu 2007. Hún er fyrsti kvenforseti Perú.
Remove ads
Uppvöxtur og menntun
Boluarte er fædd þann 31. maí 1962 í Chalhuanca í Apurímac-héraði. Hún útskrifaðist sem lögfræðingur frá Háskólanum í San Martín de Porres og stundaði framhaldsnám við háskólann.[1][2]
Stjórnmálaferill
Boluarte er forseti Apurímac-klúbbsins í Líma.[3] Hún hefur unnið sem lögfræðingur og skrifstofustjóri hjá perúsku þjóðskránni (sp. Registro Nacional de Identificación y Estado Civil, RENIEC) frá árinu 2007.[4]
Hún bauð sig fram án árangurs í borgarstjórakosningum Surquillo-umdæmisins í Líma árið 2018 fyrir stjórnmálaflokkinn Frjálst Perú.[5][3] Hún gaf einnig kost á sér í þingkosningum Perú árið 2020 fyrir Frjálst Perú en náði ekki kjöri.[5][3]
Remove ads
Varaforseti (2021–2022)
Boluarte var frambjóðandi til embættis varaforseta Perú í forsetaframboði Pedro Castillo árið 2021.[6] Boluarte og Castillo unnu seinni umferð kosninganna og tóku við embætti í júlí sama ár 2021.[7][8]
Þann 29. júlí 2021 var Boluarte einnig útnefnd ráðherra í þróunarmálum og félagslegri aðlögun.[9]
Í janúar 2022 staðhæfði Boluarte í viðtali við La República að hún hefði aldrei trúað á hugmyndafræði Frjáls Perú. Boluarte kvaðst alltaf hafa verið vinstrisinnuð, en væri það á lýðræðislegum grunni en ekki alræðislegum.[10] Aðalritari flokksins, Vladimir Cerrón, rak hana í kjölfarið úr flokknum og skrifaði í færslu á Twitter: „Alltaf trygg, aldrei svikarar.“ Cerrón sagði jafnframt að yfirlýsing Boluarte stofnaði samheldni flokksins í hættu.[11]
Þann 5. desember 2022 samþykkti þingnefnd um stjórnarskrárásakanir kvörtun um Boluarte vegna þess að hún hefði rekið einkaklúbb á meðan hún vann sem þróunarmálaráðherra.[12]
Forseti (2022–)
Í desember 2022 reyndi Pedro Castillo að leysa upp perúska þingið á meðan vantrauststillaga gegn honum var til umfjöllunar. Boluarte fordæmdi tilraun Castillo og kallaði útspil hans „valdarán sem gerir bara illt verra í þeirri stjórnarkreppu sem er við lýði“. Þingið leysti Castillo í kjölfarið úr embætti og Boluarte sór embættiseið sem nýr forseti. Hún er fyrsti kvenforseti í sögu landsins.[13]
Eftir að Castillo var vikið úr embætti brutust út mótmæli í hlutum landsins sem leiddu til tveggja dauðsfalla. Í kjölfarið tilkynnti Boluarte að hún hefði náð samkomulagi um að láta flýkka þingkosningum um tvö ár og að þær yrðu haldnar árið 2024.[14] Mótmælin hafa engu að síður haldið áfram og stuðningsmenn Castillos hafa krafist þess að Boluarte segi af sér. Þann 16. janúar 2023 höfðu 43 mótmælendur fallið í valinn í átökum við yfirvöld.[15]
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads