Eric Kripke
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Eric Kripke (fæddur 24. apríl 1974 í Toledo í Ohio) er bandarískur sjónvarpshöfundur, leikstjóri og framleiðandi. Hann þekktastur fyrir að vera höfundur sjónvarpsþáttanna Supernatural og Revolution.
Einkalíf
Kripke er fæddur í Toledo, Ohio. Bjó hann til heimagerðar kvikmyndir með vinum sínum til þess að sýna öðrum stúdentum. Stundaði nám við USC School of Cinematic Arts þaðan sem hann útskrifaðist árið 1996.[1]
Kripke er giftur og á einn son.[2]
Ferill
Sjónvarp
Fyrsta sjónvarpsverkefni Kripke er frá 2003 þar sem hann þróaði og skrifaði sjónvarpsþáttinn Tarzan fyrir The WB sjónvarpsstöðina en aðeins átta þættir voru gerðir.
Árið 2005 þróaði hann og skrifaði sjónvarpsþáttinn Supernatural sem var tekin upp af The WB sjónvarpsstöðinni en er núna sýndur á The CW sjónvarpstöðinni. Kripke tók stöðu framleiðslustjóra og yfirhandritshöfundar við þáttinn. Kripke yfirgaf þáttinn eftir fimmtu þáttaröðina. Kripke er enn titlaður sem framleiðlustjóri og sem sérstakur ráðgjafi við þáttinn en til þessa hafa verið framleiddar átta þáttaraðir.[3]
Í ágúst 2011, var tilkynnt að Kripke væri að þróa seríu fyrir The CW sjónvarpstöðina, sem myndi vera byggð á DC Comics persónunni Deadman en ekkert varð úr verkefninu.
Kripke þróaði nýja séríu sem heitir Revolution sem var tekin upp af NBC sjónvarpstöðinni haustið 2012. Kripke er titlaður sem framleiðslustjóri ásamt J.J. Abrams. Þátturinn var frumsýndur 17. September 2012 á NBC sjónvarpstöðinni.[4]
Kvikmyndir
Fyrsta kvikmyndaverkefni Kripke voru kvikmyndirnar Battle of the Sexes og Truly Committed sem hann sjálfur skrifaði handritið að og leikstýrði árið 1997.
Árið 2005 skrifaði hann handritið að hryllingsmyndinni Boogeyman .
Remove ads
Kvikmyndir og sjónvarp
Handritshöfundur
- 2012-til dags: Revolution (11 þættir)
- 2013: Haunted
- 2005-til dags: Supernatural (167 þættir) (sem höfundur þáttarins)
- 2012: Deadman (skrifað af)
- 2011: Supernatural: The Animation ( 5 þættir)
- 2010: Ghostfacers (10 þættir)
- 2008: Boogeyman 3 (byggt á persónum eftir Kripke)
- 2007: Boogeyman 2 (persónur)
- 2005: Boogeyman
- 2003: Tarzan (8 þættir)
- 1997: Truly Committed
- 1997: Battle of the Sexes
Framleiðandi
- 2012-til dags: Revolution (Framleiðslustjóri)
- 2013: Haunted (Framleiðslustjóri)
- 2012: Deadman (Framleiðslustjóri)
- 2005-til dags: Supernatural (Framleiðslustjóri)
- 2011: The Adjustment Bureau (Aðstoðarframleiðandi)
- 2010: Ghostfacers (10 þættir/Framleiðslustjóri)
- 2005: Boogeyman (Meðframleiðandi)
- 2003: Tarzan (8 þættir/Meðframleiðandi)
Leikstjóri
- 2013: Haunted
- 2007-2009: Supernatural (2 þættir)
- 1997: Truly Committed
- 1997: Battle of the Sexes
Verðlaun og tilnefningar
- Austin Film Festival
- 1997: Tilnefndur fyrir bestu stuttmyndina fyrir Truly Committed .
- SFX verðlaunin, UK
- 2011: Tilnefndur fyrir besta sjónvarpshandritið fyrir Supernatural fyrir þáttinn Swan Song með Steve Boyum og Eric ´Giz´ Gewirtz .
- Slamdance Film Festival
- 1998: Verðlaun fyrir bestu stuttmyndina fyrir Truly Committed.
Árið 2008 þá var hann nefndur einn af meisturum hrollvekjunnar af TelevisionWeek fyrir starf sitt í sjónvarpi.[5]
Remove ads
Neðanmálsgreinar
Heimildir
Tenglar
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads
