Flórída
fylki í Bandaríkjunum From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Flórída (stundum kallað The Sunshine State „sólskinsfylkið“) er fjórða fjölmennasta fylki Bandaríkjanna. Höfuðborg ríkisins heitir Tallahassee, en stærsta borgin er Jacksonville eða stórborgarsvæði Miami, eftir því hvernig á það er litið. Aðrar þekktar borgir eru Tampa, Orlando og Fort Lauderdale. Í fylkinu búa yfir 21 milljón manna. Flórída er vinsæll ferðamannastaður. Í Flórída er hinn geysivinsæli skemmtigarður Disneyworld.[2]
Flórída er skagi þannig að fylkið er næstum alveg umkringt vatni. Í norðvestri á það landamæri að Alabama og í norðaustri að Georgíu.
Spænski landvinningamaðurinn Ponce de León sigldi til Flórída árið 1513 í leit að gulli og silfri. Hann fann það ekki, en uppgötvaði frjósamt ræktarland og mikla strandlengju sem hentaði vel fyrir siglingar. Hann nefndi svæðið La Florida út af því hve frjósamt það virtist, auk þess sem þá voru páskar sem eru kallaðir La Pascua Florida („blómahátíðin“). Bretland, Frakkland og Spánn reyndu öll að koma á landnemabyggðum í Flórída næstu aldir. Árið 1763 náðu Bretar Flórída á sitt vald af Spáni í skiptum fyrir landið sem nú er Havana á Kúbu. Aðeins tveimur áratugum síðar, sem hluti af friðarsáttmála sem batt enda á bandaríska frelsisstríðið, tók Spánn aftur við völdum þar. Það entist ekki lengi. Nýir bandarískir landnemar tóku að flæða inn og árið 1821 lét Spánn Bandaríkjunum Flórída eftir í skiptum fyrir Texas. Flórída varð formlega 27. fylki Bandaríkjanna árið 1845.[3]
Dýralíf Flórída er fjölbreytt og inniheldur spendýr eins og beltisdýr, svartbirni og flórídafjallaljón; skriðdýr eins og krókódíla og snáka; sjávarlíf eins og sæskjaldbökur, höfrunga og aðra hvali; og fugla eins og rjúpur, uglur, trönur og fylkisfuglinn í Flórída, hermifuglinn.
Remove ads
Sýslur
Fylkinu er skipt í 67 sýslur.
Tilvísanir
Tenglar
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads