Gullkollur
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Gullkollur (fræðiheiti Anthyllis vulneraria) er jurt af ertublómaætt. Talið er að Gullkollur hafi verið fluttur til Íslands sem fóðurjurt í Selvog og þaðan breiðst út.
Remove ads
Lýsing
Hann er tví eða fjölær jurt með gul (sjaldan rauðgul eða rauð) blóm. Hann nær allt að 20 sm hæð. Hann er góð fóðurjurt fyrir skepnur en vegna smæðar hentar hann einkum til beitar.
Útbreiðsla
Gullkollur er útbreiddur í Evrópu, Litluasíu og Norður Afríku, á sólríkum stöðum í þurrum og kalkríkum jarðvegi. Á Íslandi er hann mestmegnis bundinn við suðvesturhornið og einkum nágrenni Selvogs.
Undirtegundir
Gullkollur er með nokkrar undirtegundir sem eru bundnar mismunandi hlutum útbreiðslusvæðisins:
- Íslenskur gullkollur(Anthyllis vulneraria ssp. borealis)
- Aðaltegundin (Anthyllis vulneraria ssp. carpathica)
- Danskur gullkollur (Anthyllis vulneraria ssp. danica)
- Finnskur gullkollur (Anthyllis vulneraria ssp. fennica)
- Laplands gullkollur (Anthyllis vulneraria ssp. lapponica)
- Rauðblóma gullkollur (Anthyllis vulneraria ssp. praepropera)
- Lítill gullkollur(Anthyllis vulneraria ssp. vulneraria)
Myndir
- Blóm
- Blóm
- Laufblöð
- Rauðblóma afbrigði
- Planta
Heimildir
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads