Háskólinn á Akureyri

From Wikipedia, the free encyclopedia

Háskólinn á Akureyri
Remove ads

Háskólinn á Akureyri er háskóli í bænum Akureyri á Íslandi sem stofnaður var árið 1987. Hann hefur vaxið mikið síðan og í dag eru þar skráðir í kring um 2.800 stúdentar. Skólinn er meðal þeirra fremstu á Íslandi og hefur verið framsækinn þegar kemur að sveigjanlegu námsfyrirkomulagi.

Staðreyndir strax

Sveigjanlegt nám er stór kostur við Háskólann á Akureyri. Fjölbreyttar og nútímalegar kennslu- og námsaðferðir eru notaðar við miðlun námsefnis.

Allt grunnám er í boði sem sveigjanlegt nám. Það þýðir að stúdentar þurfa ekki endilega að vera búsettir á Akureyri heldur koma í háskólann í sérstakar námslotur þar sem megináhersla er lögð á verkefnavinnu og umræður. Allir fylgja sömu námskránni og námskröfur eru þær sömu.

Í námslotunum gefst þér tækifæri til að hitta kennara, stúdenta og annað starfsfólk háskólans og tengjast enn betur háskólasamfélaginu.

Remove ads

Saga

Thumb
Íslandsklukkan við Sólborg

Háskólinn á Akureyri var stofnaður 5. september 1987 og starfaði hann fyrst í stað í húsnæði Verkmenntaskólans á Akureyri að Þingvallastræti 23. Þá var boðið upp á nám í tveimur deildum: Heilbrigðisdeild og Rekstrardeild. Fyrsti rektor skólans var Haraldur Bessason. Fyrstu útskriftarnemarnir voru 10 iðnrekstrarfræðingar, brautskráðir 1989. Fyrstu framhaldsnemarnir voru brautskráðir með M.Sc. í hjúkrunarfræðum 26. febrúar 2000.

Remove ads

Nám

Fjölbreytt nám er í boði við Háskólann á Akureyri, bæði á grunn- og framhaldsstigi. Frá og með vormisseri 2019 varð Háskólinn á Akureyri fullvaxta háskóli með nám á öllum þrepum háskólanáms þegar honum var veitt heimild til að bjóða upp á doktorsnám. Kennsla fer fram á tveimur fræðasviðum og þau eru:

Hug- og félagsvísindasvið

Hug- og félagsvísindasvið samanstendur af fjórum deildum; Félagsvísindadeild, Lagadeild, Sálfræðideild og Kennaradeild. Þar er boðið upp á fjölbreytt grunnnám bakkalárprófs (B.A. og B.Ed.) og framhaldsnám til meistaraprófs (M.A., M.Ed., M.l. og ll.M). Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri tilheyrir einnig sviðinu og starfar það í nánum tengslum við Kennaradeild að þróunar- og umbótastarfi í skólum, ásamt ráðgjöf og fræðslu.

Námið einkennist af fjölbreyttum áherslum sem koma til móts við ólíkar þarfir og áhuga stúdenta. Hver deild hefur sína sérstöðu:

  • Í Félagsvísindadeild er boðið upp á fjórar námsleiðir til BA gráðu, þar af eru félagsvísindi, fjölmiðlafræði og lögreglufræði einungis kennd við Háskólann á Akureyri. Að hluta til er boðið upp á sömu námskeið í þessum námsleiðum á fyrsta ári og stúdentar fá fljótlega tækifæri til að sérhæfa sig með því að taka valnámskeið. Til viðbótar eru í boði tvær námsleiðir á meistarastigi.
  • Við Lagadeild er kennd lögfræði í grunnnámi og framhaldsnámi auk þess sem heimskautaréttur er í boði í framhaldsnámi. Sérstaða lögfræðináms Háskólans á Akureyri felst í alþjóðlegri nálgun og sveigjanlegu námsfyrirkomulagi.
  • Í Sálfræðideild er boðið upp á 3 ára BA nám í sálfræði þar sem sérstaðan er sveigjanlegt námsfyrirkomulag og námsmat. Auk þess býður Sálfræðideild upp á MA nám í sálfræði sem er rannsóknartengt og er sniðið að áhugasviði hvers og eins.
  • Við Kennaradeild er kennt fjölbreytt nám á grunn- og framhaldsstigi. Námið miðar að því að stúdentar öðlist þá þekkingu, leikni og hæfni sem kennarastarf krefst á hverjum tíma. Deildin býður upp á fjölbreytt nám með margvíslegri sérhæfingu sem leggur traustan grunn að þeirri færni sem þróun skólastarfs, iðkun rannsókna og frekara nám gerir kröfur um.

Grunnám:

Framhaldsnám:

Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið

Inann Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs eru fimm deildir: Auðlindadeild, Framhaldsnámsdeild í heilbrigðisvísindum, Hjúkrunarfræðideild, Iðjuþjálfundarfræðideild og Viðskiptadeild. Fræðasviðið býður upp á fjölbreytt grunn- og framhaldsnám og þar er einnig að finna námsleiðir sem einungis eru kenndar við Háskólann á Akureyri og hafa markað sér ákveðna sérstöðu. Hver deild hefur sína sérstöðu:

  • Í Auðlindadeild er lögð rík áhersla á nám og rannsóknir í tengslum við sjálfbæra og arðbæra nýtingu náttúruauðlinda. Með þetta að leiðarljósi er boðið upp á hagnýtt viðskipta- og raunvísindatengt nám á þremur fræðasviðum; líftækni, sjávarútvegsfræði og náttúru- og auðlindafræði.
  • Framhaldsnámsdeild í heilbrigðisvísindum hefur það að markiði að mennta fagfólk á heilbrigðissviði til vísindarannsóknastarfa og nýsköpunar. Sérstaða og styrkur námsins felst meðal annars í þverfaglegum stúdentahópi þar sem fagfólk úr hinum ýmsu fagstéttum heilbrigðiskerfisins kemur saman til að taka sínar meistaragráður.
  • Hjúkrunarfræðideild býður upp á 4 ára BS nám í hjúkrunarfræði og er Háskólinn á Akureyri eini háskólinn á landinu sem býður upp á sveigjanlegt nám í hjúkrunarfræði.
  • Iðjuþjálfundarfræðideild býður upp á 3 ára BS nám í iðjuþjálfunarfræði og 1 árs viðbótardiplómu til starfsréttinda í iðjuþjálfun en Háskólinn á Akureyri er eini háskólinn á landinu sem býður upp á nám í iðjuþjálfunarfræði.
  • Viðskiptadeild býður upp á grunn og framhaldsnám sem er fjölbreytt og hagnýtt. Áhersla er lögð á sveigjanlegt námsfyrirkomulag. Þá býður HA upp á nám í tölvunarfræði í samstarfi við Háskólann í Reykjavík.

Grunnnám:

Framhaldsnám:

Doktorsnám

Doktorsnám við Háskólann á Akureyri er einstaklingsmiðað nám og rannsóknarverkefni doktorsnemans er lykilþáttur námsins. Doktorsnemar háskólans verða virkir þátttakendur í vísindasamfélagi HA. Námið veitir prófgráðuna Philosophiae Doctor (PhD) á tilteknu fræðasviði.

Remove ads

Stofnanir

Innan vébanda Háskólans á Akureyri eru starfræktar ýmsar stofnanir sem sinna rannsóknum og ýmiss konar þjónustu við fræðasamfélagið.

Rannsóknastofnanir

Þjónustustofnanir

Félagslíf

Rektorar

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads