Haraldur Bessason
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Haraldur Bessason (14. apríl 1931 – 8. apríl 2009) var íslenskur fræðimaður og rithöfundur og um tíma rektor Háskólans á Akureyri og prófessor við íslenskudeild Manitoba-háskóla í þrjá áratugi. Hann ritstýrði auk þess Lögbergi-Heimskringlu og Tímariti hins íslenska þjóðræknisfélags um árabil og skrifaði greinar og bækur. Haraldur var fyrsti rektor Háskólans á Akureyri árin 1987 til 1994 og var seinna kjörinn fyrsti heiðursdoktor háskólans árið 2000.
Haraldur Bessason fæddist í Kýrholti í Viðvíkursveit í Skagafirði. Foreldrar hans voru: Elinborg Björnsdóttir kennari (1886-1942) og Bessi Gíslason hreppstjóri(1894-1978).
Remove ads
Bækur
- Bréf til Brands (útg. 1999)
- Dagstund á Fort Garry: svipmyndir (útg. 2007)
Tenglar
- Ég ætlast til að allir viti hvar Skagafjörður er; grein í DV 1982
- Nýr prófessor við íslenzkudeild Manitobaháskólans; grein í Lögbergi 1956
- Haraldur Bessason látinn; af Mbl.is
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads