HTML

From Wikipedia, the free encyclopedia

Remove ads

HTML (skammstöfun á Hypertext Markup Language) er mál sem er notað við gerð vefsíðna. Það setur fram texta og segir til um snið hans. Þessi gerð af málum kallast ívafsmál. HTML-skjöl innihalda svo hlekki sem geta beint á önnur skjöl.

Staðreyndir strax Skráarending:, MIME-gerð: ...
Remove ads

Sérstök merki (tögg) eru notuð til að merkja hvað hinir ýmsu hlutar skjalsins þýða. Töggin eru táknuð með goggum (< og >) og er texti t.d. feitletraður svona: <b>feitletraður texti</b> (b táknar bold, sem er enska fyrir feitletrun).

Við gerð vefsíðna er útliti skjalsins svo stýrt með þar til gerðu máli, CSS, og frekari gagnvirkni er útbúin með forritunarmálinu JavaScript.

HTML er nú staðall sem grasrótarsamtökin WHATWG viðhalda, en var áður í höndum Alþjóðasamtaka um veraldarvefinn (W3C). Síðasta opinbera útgáfa staðalsins frá W3C var HTML5, en nú er HTML lifandi staðall í stöðugri þróun hjá WHATWG.

Dæmi um HTML5-kóða:

<!DOCTYPE html>
<html>
  <!-- 
    Hausinn inniheldur ýmsar 
    upplýsingar sem vafrinn 
    notar en notandi sér ekki 
  -->
  <head>
    <meta charset="UTF-8" /> <!-- Þetta þarf til að nota íslenska stafi -->
    <title>Titill þessarar síðu</title>
  </head>
  <!-- 
    Í skrokknum á skjalinu kemur svo
    allur texti skjalsins.
  -->
  <body>
    <p>Halló heimur!</p>
  </body>
</html>
Thumb
Myndræn sundurliðun á atriðum HTML-liðar.
Remove ads

Tenglar

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads