Herðubreið
Fjall á Suðausturlandi From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Herðubreið er 1686 metra hátt móbergsfjall norðan Vatnajökuls innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Hún er í Ódáðahrauni og er oft nefnd „Drottning íslenskra fjalla“ vegna þess hve mörgum finnst hún formfögur. Fjallið myndaðist við eldgos undir jökli. Á toppi þess eru hraunlög og hefur gosið því náð upp úr jöklinum. Slík fjöll, þ.e.a.s. móbergsfjöll með hraunlögum að ofan, kallast stapar. Herðubreið var valin þjóðarfjall Íslendinga í kosningu árið 2002.

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Herðubreið.
Fyrst var gengið á Herðubreið með vissu árið 1908 en fram að því hafði hún verið talin ógeng. Það gerðu Sigurður Sumarliðason og þýski jarðfræðingurinn Dr. Hans Reck í ágúst það ár nánar tiltekið 13. ágúst 1908. Þann 21. apríl 2009, 101 ári seinna, fór Björn Böðvarsson vélsleðakappi úr Mývatnssveit á topp Herðubreiðar á vélknúnu ökutæki fyrstur manna, er hann náði toppnum á vélsleða sínum.
Remove ads
Tengt efni
Heimild
- Fyrirmynd greinarinnar var „Herðubreið“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 14. desember 2005.
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads