Hunangsflugur

From Wikipedia, the free encyclopedia

Hunangsflugur
Remove ads

Humlur einnig nefndar hunangsflugur (fræðiheiti: Bombus) er vængjað og flugfært félagsskordýr af samnefndri ættkvísl af hunangsfluguætt (einnig kölluð býflugnaætt). Tegundirnar eru um 250 talsins. Hunangsflugur, líkt og býflugur sem þær eru skyldar í gegnum hunangsfluguætt, nærast á blómasafa og safna frjódufti til að fæða afkvæmi sín.

Staðreyndir strax Vísindaleg flokkun ...
Remove ads

Hunangsflugur á Íslandi

Á Íslandi eru þrjár tegundir hunangsflugna; móhumla (Bombus jonellus) sem hefur líklega verið á Íslandi frá lokum síðustu ísaldar, garðhumla (Bombus hortorum) sem nam land um 1960 og húshumla (Bombus lucorum) sem nam land árið 1979. Jarðhumla (Bombus terrestris) hefur líka haft einhverja viðkomu á landinu.[1] Að auki hafa rauðhumlur (Bombus hypnorum) nýlega sést á Íslandi og er talið líklegt að þær festi rætur þar.[2] Það er algengur misskilningur að hunangsflugan deyi eftir að hafa stungið en svo er ekki,[3] hún er yfirleitt friðsæl og stingur ekki nema henni sé ógnað, en hún getur stungið oftar en einu sinni.

Remove ads

Heimild

Tenglar

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads