Judas Priest

From Wikipedia, the free encyclopedia

Judas Priest
Remove ads

Judas Priest er ensk þungarokkshljómsveit frá Birmingham, Englandi. Hún var stofnuð árið 1969 og telst stundum til bresku nýbylgjunnar í þungarokki. Rob Halford hefur yfirleitt verið söngvari Priest.

Staðreyndir strax Upplýsingar, Uppruni ...
Thumb
Judas Priest árið 2005

Priest náði verulegum vinsældum fyrst með plötunni British Steel (1980) með lögum eins og Breaking the Law og Living after Midnight. Ímynd þeirra með leður og göddum var áhrifamikil á þungarokksmenninguna og stefnur eins og powermetal og þrass.

Halford yfirgaf Priest eftir Painkiller tónleikaferðalagið árið 1991. Painkiller-platan var umsnúningur í hraðari og þyngri stíl frá síðustu plötum sem voru poppaðri síðla á 9. áratugnum.

Árið 1990 var Judas Priest ákærð vegna sjálfsmorðs tveggja unglinga. Fjölskyldur þeirra héldu því fram að orsök sjálfsmorðanna hafi mátt rekja til þess að á plötu þeirra, Stained Class sem þeir höfðu verið að hlusta á áður en þeir frömdu verknaðinn, hafi verið duld skilaboð um hvatningu til sjálfsmorðs. Með því að spila lög af Stained Class aftur á bak hafi mátt heyra skilaboð eins og: „Gerðu það, gerðu það," [1]. Hljómsveitin var sýknuð af ákærunni.

Á árunum 1996-2003 var Tim Ripper Owens söngvari hljómsveitarinnar. Owens hafði áður verið í sveitinni British Steel sem tók ábreiðulög frá Judas Priest og náði eyrum hljómsveitarinnar eftir að Halford hætti. Kvikmyndin Rockstar með Mark Wahlberg og Jennifer Aniston var innblásin af veru Owens í Priest. Warner Bros sem framleiddi myndina vildi hafa Priest að einhverju leyti með í ráðum en að lokum komst hljómsveitin ekki að samkomulagi við Warner Bros þar sem meðlimirnir vildu hafa meiri áhrif á handritið. [2]

Rob Halford kom svo aftur árið 2003. KK Downing hætti árið 2011 eftir ósætti við meðlimi og Glen Tipton gat ekki spilað á tónleikaferðalögum frá 2018 vegna Parkinsonveiki. Hann kemur þó enn fram á einstaka tónleikum. Richie Faulkner sem spilað hefur í bandi Lauren Harris, dóttur Steve Harris, úr Iron Maiden tekið við gítarskyldum. Pródusentinn og gítarleikarinn Andy Sneap hefur svo hjálpað til á tónleikaferðalögum og í stúdíói.

Platan Firepower frá 2018 fékk mjög góða dóma og var framlag Faulkners lofað. Platan náði 5. sæti á breska listanum og var það hæsta sæti plötu sveitarinnar síðan British Steel kom út. Árið 2022 var Priest heiðruð í Frægðarhöll rokksins. [3]

K.K. Downing stofnaði sveitina KK's Priest árið 2020 og fékk Ripper Owens, fyrrum söngvara Priest, til að syngja þar.

Remove ads

Meðlimir

  • Ian Hill – bassi, bakraddir (1969–)
  • Rob Halford – söngur (1973–1992, 2003–)
  • Glenn Tipton – gítar, bakraddir (1974–) (hefur túrað lítið síðan 2018)
  • Scott Travis – (1989–)
  • Richie Faulkner – gítar, bakraddir (2011–)

Tónleikameðlimir

  • Andy Sneap – gítar, (2018–)

Breiðskífur

  • Rocka Rolla (1974)
  • Sad Wings of Destiny (1976)
  • Sin After Sin (1977)
  • Stained Class (1978)
  • Killing Machine (1978)
  • British Steel (1980)
  • Point of Entry (1981)
  • Screaming for Vengeance (1982)
  • Defenders of the Faith (1984)
  • Turbo (1986)
  • Ram It Down (1988)
  • Painkiller (1990)
  • Jugulator (1997)
  • Demolition (2001)
  • Angel of Retribution (2005)
  • Nostradamus (2008)
  • Redeemer of Souls (2014)
  • Firepower (2018)
  • Invincible Shield (2024)
Remove ads

Tengill

Garg (vefrit) - Judas Priest[óvirkur tengill]

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads