Kornlögin
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Bresku kornlögin voru lög sem sett voru í Bretlandi árið 1815 til að vernda innlenda bændur fyrir innflutning á mjöli. Lögin giltu frá 1815 til 1846. Uppruni laganna má rekja til verðfalls á korni í lok Napóleonsstyrjaldanna. Verðfallið kom sér vel fyrir fátæka alþýðu en síður fyrir landeigendur og bændur sem voru ekki samkeppnishæfir. Breska þingið tók þá upp ný lög “Kornlögin“. Markmið laganna var að vernda breskan landbúnað með háum tollum sem lagðir voru á innfluttar kornvörur.

Margar deilur og stórar hreyfingar urðu í kjölfar laganna vegna ágreinings milli stétta. Kornlögin áttu eftir að hafa mikil áhrif á Breskt samfélag og afleiðingar þeirra voru sýnilegar í áratugi, enda eitt umdeildasta mál 19.aldar.
Kornlögin voru ekki aðeins lagasetning um landbúnaðarvernd heldur lykilatriði í pólitískri og efnahagslegri sögu Bretlands. Þau ýttu undir deilur meðal frægra hagfræðinga og ágreining um framtíð viðskipta. Afnám laganna árið 1846 markaði upphaf fríverslunarstefnu Bretlands og hafði víðtæk áhrif.
Remove ads
Uppruni kornlaganna
Á meðan á Napóleonsstyrjöldinni stóð á árunum 1803 til 1815, var nær ómögulegt að flytja inn korn til Bretlands. Þetta leiddi til þess að innlent korn varð mjög dýrt og landeigendur högnuðust vel. Þegar stríðinu lauk varð innflutningur meiri og stóð til að flytja inn ódýrara korn frá Póllandi og Rússlandi. Breskir landeigendur óttuðust að verðið myndi falla og hagnaður þeirra hverfa. Breska þingið sem þá var undir stjórn forsætisráðherrans Lord Liverpool (Robert Banks Jenkinson) setti fram kornlögin með stuðning frá Íhaldsflokknum. Á þessum tíma réðu landeigendur nánast einhliða yfir Breska þinginu og hugsuðu einungis um að vernda hagsmuni sína og eigin arðsemi.
Þar sem kornlögin sneru að háum tollum á korn innflutning var erlent mjöl einungis flutt inn ef innlent verð fór yfir ákveðið mark. Þetta þýddi að verðið á kornvörum í Bretlandi hélt áfram að vera hátt, sem hjálpaði landeigendum en gerði mat dýrari fyrir almenning. Kornlögin urðu mjög umdeild þar sem landeigendur vildu halda þeim, en iðnrekendur og verkamenn voru á móti. Ágreiningur myndaðist milli verkafólks og landeigenda sem leiddi til Anti Corn Law League, ein öflugasta stjórnmálahreyfing 19. aldar.[1]
Remove ads
Áhrif laganna
Verð á korni hækkaði verulega á tímum Napóleonsstyrjaldanna sem komu í veg fyrir innflutning. Þegar friður komst á árið 1814 spruttu upp miklar deilur innan Breska þingsins og umræða meðal almennings um kröfur landeigenda á lágmarksverð á korni.
Landeigendur nutu góðs af lögunum, þar sem hærra matvælaverð jók tekjur þeirra og styrkti stöðu þeirra í stjórnmálum. Hins vegar leiddu lögin til hærri matarverðs sem bitnaði aðallega á almennum neytendum og verkafólki. Félagslegur ójöfnuður jókst og átök milli landeigenda og borgarastéttar varð sífellt meiri.[2]
Með vaxandi iðnvæðingu á þriðja og fjórða áratugnum jókst andstaðan við lögin, einkum í Birmingham og Manchester. Þar töldu iðnrekendur og millistéttir að lægra kornverð myndi efla hagvöxt. Eftir setningu kornlaganna jókst óánægja meðal borgarastéttar og kaupmanna, sérstaklega í Norður-Englandi þar sem hærra matvælaverð dró úr kaupmætti launafólks. Þessi óánægja varð grunnur að skipulagðri andstöðu og stofnun samtaka sem börðust fyrir afnámi laganna.[3] Árið 1838 var Anti-Corn Law League stofnuð til að berjast fyrir afnámi laganna.[4]
Mótmæli og barátta í þinginu
Anti-Corn Law League var stofnuð 1838 undir forystu Richard Cobden og John Bright. Stuðningsmenn hennar voru aðallega úr iðnaðarborgarastétt, þeir sem töldu kornlögin þjóna landeigendum á kostnað almennings. Aðferðir Anti Corn Law League voru margar og fjölbreyttar. Nefna má fjölmörg almenn mótmæli og samkomur í borgunum þar sem fulltrúar héldu ræður um rök gegn kornlögunum. Dreifðir voru bæklingar til almennings til að auka vitund og þekkingu til að slá fleiri í hópinn gegn lögunum. Málflutningur hreyfingarinnar byggði á kenningum klassískra hagfræðinga, að frjáls verslun myndi hækka matvælaverð, auka kaupmátt launafólks og efla útflutning iðnvöru.[5]
Baráttan gagnvart kornlögunum náði hámarki á árunum 1830 til 1846 með miklum pólitískum átökum, þrýstihreyfingum og á endanum afnámi sem markaði vendipunkt í hagstjórn Breta. Robert Peel lagði árið 1846 fram frumvarp um niðurfellingu tolla á þremur árum, sem samþykkt var í lávarðadeild 25.júní. Afnámið markaði upphaf tímabils frjálsar verslunar í Bretlandi og hafði víðtæk áhrif á efnahagsstefnu landsins. Matvælaverð lækkaði, staða borgarstéttar styrktist og tekjur landeigenda minnkuðu.[6]
Fram undir 1830 var ólga í Bresku samfélagi vegna lítils hagvöxts, loftslagsbreytinga og slæmrar uppskeru. Með samþykki þingbreytingalaganna árið 1832 sem efldi stöðu borgarastéttarinnar, hófst markviss og opinber andstaða gegn kornlögunum. Frá árunum 1837 til 1845 lagði þingmaðurinn Charles Villiers árlega fram frumvarp um afnám laganna.
Afnám laganna
Árið 1841 tók Robert Peel við embætti forsætisráðherra. Peel var upphaflega á móti afnámi kornlaganna, en breytti síðar afstöðu sinni eftir að hafa kynnt sér kenningar klassískra hagfræðinga. Hann sem forsætisráðherra breytti þó ekki kornlögunum strax heldur hóf hann aðgerðir til að létta á þeim, meðal annars með því að breyta því sem tengdi toll við verðlagsstig.[6]
Hungursneyðin á Írlandi frá 1845 til 1849 jók þrýsting á stjórnvöld og gerði vandann enn sýnilegri, því takmarkanir gerðu fæðuskort verri. Þetta setti mikinn þrýsting á Bresk stjórnvöld til að afnema lögin. Að frumkvæði Peel, voru kornlögin loks felld niður árið 1846, sem markaði endalok áratuga deilna um þau.[7]
Remove ads
Upphaf fríverslunar
Lykilskref fyrir þróun breskrar fríverslunarstefnu var afnám kornlaganna. Í kjölfarið lækkuðu Bretar tolla og viðskiptahindranir, sem styrkti útflutningsdrifinn iðnað landsins. Bretland varð þá leiðandi málsvari frjálsra viðskipta á heimsvísu á seinni hluta 19.aldar.[2]
Afleiðingar fyrir mismunandi hópa voru skýrar. Landeigendur misstu mikilvægan tekjustofn og áhrif þeirra á pólitík minnkaði. Almennir neytendur nutu lægra matarverðs sem létti á framfærslukostnaði. Millistétt í iðnaði og verslun styrkti stöðu sína og hafði meiri áhrif í stjórnmálum.[8]
Greining klassísku hagfræðinganna á kornlögunum
Deilurnar höfðu mikilvæg áhrif á þróun hagfræðinnar, en meðal þátttakenda í deilunni voru James Mill, John Stuart Mill, Jean-Baptiste Say, Thomas Malthus og David Ricardo.
Adam Smith, James Mill, John Stuart Mill & Jean-Baptiste Say
Hugmyndir Adam Smith, sem hafði áður fyrr lagt áherslu á frjáls viðskipti og “ósýnilegu höndina”, voru notaðar sem rök gegn verndartollum og notaðar af andstæðingum kornlaganna til að sýna fram á að markaðsöflin sjálf leiddu til aukinnar velferðar.[9]
James Mill og sonur hans, John Stuart Mill, gagnrýndu einnig lögin. James Mill studdi afnám þeirra vegna hagkvæmni og réttlætis, í anda David Ricardo's. John Stuart Mill tengdi andstöðuna við kornlögin við hugmyndir sínar um fríverslun og einstaklingsfrelsi. Eitt sem hann viðurkenndi þó var að ríkið gæti þurft að grípa inn í til að verja minnihluta hópa, sem sýndi málið í félagslegu samhengi.[10]
Franski hagfræðingurinn Jean-Baptiste Say var líka andstæðingur verndartolla og vildi halda því fram að viðskipti milli þjóða væru gagnkvæm. Þannig óbeint gagnrýndi hann kornlögin með því að leggja áherslu á að hindranir í verslun draga úr heildarvelferð.[8]
Thomas Malthus & David Ricardo
Breski presturinn, hagfræðingurinn og félagsfræðingurinn Thomas Malthus hélt því fram að kornlögin væru nauðsynleg til að tryggja stöðuga innlenda matvælaframleiðslu. Hann óttaðist að Bretland yrði annars of háð innflutningi, sem væri hættulegt ef það kæmi stríð eða uppskerubrestur erlendis.
David Ricardo, breskur stjórnmálafræðingur og hagfræðingur hélt því fram að kornlögin héldu uppi óeðlilega háu verði á korni. Það gerði það að verkum að landeigendur fengu meira af hagnaðinum í formi leigu eða rentu, en iðnrekendur og verkamenn sátu eftir með minna.[11]
Hópur verndarsinnar studdi áframhaldandi vernd landbúnaðar. Þeir héldu því fram að innlend kornframleiðsla væri undirstaða þjóðarinnar og að Bretland mætti ekki verða of háð erlendum mörkuðum. Þetta sjónarhorn byggist á hugmyndum um öryggi og mikilvægi sveitabúskapar fyrir samfélagið í heild.
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads
