Maníla

höfuðborg Filippseyja From Wikipedia, the free encyclopedia

Manílamap
Remove ads

Maníla (tagalog: Maynila) er höfuðborg Filippseyja. Borgin stendur á stærstu eyju eyjaklasans; Lúson við austanverðan Manílaflóa. Höfuðborgarsvæðið, Stór-Manílasvæðið, tekur til 17 borga og sveitarfélaga og þar búa rúmlega 11 milljónir manns. Maníla ein og sér hefur 1,9 milljón íbúa og er næst fjölmennesta einstaka borg landsins næst á eftir Quezon borg fyrrum höfuðborg landsins sem telst og til stór Manílasvæðisins.

Staðreyndir strax Maynila (tagalog), Land ...

Á 16. öld óx Maníla frá því að vera fámennar búðir múslima á bökkum Pasig árinnar í aðsetur spænska nýlenduveldisins. Þónokkur hluti borgarinnar eyðilagðist í seinni heimsstyrjöldinni.

Remove ads

Þéttbýli

Í borgini búa 1.902.590 manns á 42,34 km2, því er Maníla þéttbýlasta borg heims með 44,9 íbúa/km2. Dagsdaglega bætist önnur milljón við þegar námsmenn sækja skóla og starfandi fólk mætir til vinnu.

Tungumál

Opinbert tungumál er filipínska, sem byggir á tagalog. Þar við bætist að enskunnátta er nokkuð almenn, að auki má geta þess að brot af fyrirfólki Filippseyja talar spænsku vegna nýlenduáhrifa.

Menntun

Háskólabeltið hýsir flesta þá háskóla sem eru á stór Manílasvæðinu, til þess teljast m.a. Háskóli Filippseyja - Maníla, De La Salle Háskólinn og Háskóli heilags Tómasar.

Tenglar

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads