Manntal

From Wikipedia, the free encyclopedia

Remove ads

Manntal er skrá yfir alla íbúa einhvers svæðis, svo sem sveitarfélags, hrepps, sýslu eða lands. Þau eru gjarnan notuð til mannfræði- og ættfræðirannsókna og eru mikilvægar heimildir.

Manntöl eru yfirleitt gerð að frumkvæði stjórnvalda og síðan safnað saman á einn stað til úrvinnslu. Sóknarmannatöl presta eru ekki kölluð manntöl, þó þau innihaldi sambærilegar upplýsingar.

Manntöl á Íslandi

Á Íslandi hafa verið tekin manntöl frá árinu 1703. Önnur mikilvæg manntöl voru gerð 1801, 1845 og 1910.

  • Manntalið 1703. — Hagstofa Íslands gaf manntalið út á árunum 1924–1947. Aðgengilegt á manntalsvef Þjóðskjalasafns Íslands.
  • Manntalið 1729. — Nær aðeins yfir Rangárvalla-, Árnes- og Hnappadalssýslur. Gefið út sem viðauki við Manntalið 1703.
  • Manntalið 1762. — Ófullkomið manntal, nokkrar kirkjusóknir vantar, og yfirleitt er aðeins húsbóndinn nafngreindur.
  • Manntalið 1801. — Ættfræðifélagið gaf út með nafnaskrá, 1978–1980.
  • Manntalið 1816. — Ættfræðifélagið gaf út 1947–1974. Er ekki formlegt manntal, heldur samtíningur sóknarmannatala. Nokkuð vantar í manntalið þar sem kirkjubækur hafa glatast.
  • Manntalið 1835. — Aðgengilegt á manntalsvef Þjóðskjalasafns Íslands.
  • Manntalið 1840. — Aðgengilegt á manntalsvef Þjóðskjalasafns Íslands.
  • Manntalið 1845. — Ættfræðifélagið gaf út 1982–1985, nafnaskrá fjölrituð. Aðgengilegt á manntalsvef þjóðskjalasafns.
  • Manntalið 1850. — Aðgengilegt á manntalsvef Þjóðskjalasafns Íslands.
  • Manntalið 1855. — Aðgengilegt á manntalsvef Þjóðskjalasafns Íslands.
  • Manntalið 1860. — Aðgengilegt á manntalsvef Þjóðskjalasafns Íslands.
  • Manntalið 1870. — Manntalsskýrslur úr Eyjafjarðar-, Þingeyjar- og Múlasýslum glötuðust í Kaupmannahöfn. Aðgengilegt á manntalsvef Þjóðskjalasafns Íslands.
  • Manntalið 1880. — Aðgengilegt á manntalsvef Þjóðskjalasafns Íslands.
  • Manntalið 1890. — Aðgengilegt á manntalsvef Þjóðskjalasafns Íslands.
  • Manntalið 1901. — Aðgengilegt á manntalsvef Þjóðskjalasafns Íslands.
  • Manntalið 1910. — Útgáfa stendur yfir á vegum Ættfræðifélagsins, hófst 1994. Aðgengilegt á manntalsvef Þjóðskjalasafns Íslands.
  • Manntalið 1920. — Aðgengilegt á manntalsvef Þjóðskjalasafns Íslands.
  • Manntalið 1971. — Á vef Hagtstofu Íslands segir "Var því efnt til manntals í ársbyrjun 1981 með sérlögum sem jafnframt felld úr gildi almennu lögin um manntöl. Þrátt fyrir mikla vinnu við manntalið 1981 á 9. og 10. áratug síðustu aldar hefur hins vegar ekki tekist að búa það þannig úr garði að það sé birtingarhæft."
  • Manntalið 2011. — "Manntalið 31. desember 2011 var fyrsta manntalið á Íslandi sem var tekið síðan 1981. Það var tekið að undirlagi nýrra reglna á Evrópska efnahagssvæðinu sem skuldbundu aðildarlönd til að taka manntal á 10 ára fresti, fyrst á árinu 2011. Manntalið 2011 var sérstakt að því leyti að það var nær eingöngu byggt á gögnum í fórum stjórnvalda eða gagnagrunnum í vörslu Hagstofunnar. Hagstofan fékk ríkulegan fjárhagslegan stuðning frá Evrópusambandinu til þess að geta komið manntalinu í kring." (Sjá vef Hagstofu Íslands)
  • Manntalið 2021 . — Svipuð framkvæmd og árið 2011

Á fyrri hluta 20. aldar voru manntöl tekin á 10 ára fresti. Síðar var hætt að taka manntöl og íbúaskrár Hagstofu Íslands (Þjóðskrár) látnar nægja. Enn síðar var ráðist í að taka rafræn manntöl með samkeyrslu fyrirliggjandi skráa sem er sú aðferð sem notuð var við manntölin 2011 og 2021.

Remove ads

Tenglar

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads