Marg Helgenberger
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Mary Marg Helgenberger[1] (fædd 16. nóvember 1958) er bandarísk leikkona sem er þekktust fyrir hlutverk sín í CSI: Crime Scene Investigation og China Beach.
Remove ads
Einkalíf
Marg (borið fram sem hart „G,“ ólíkt nafninu Marge) Helgenberger er fædd í Fremont í Nebraska og er af írskum og þýskum uppruna.[2] Fyrsta vinna hennar sem unglingur var sem kjötskeri („boner“) í kjötvinnslunni þar sem faðir hennar vann.
Marg stundaði nám við Kearney State College (núna University of Nebraska at Kearney) í Kearney í Nebraska og síðan við Northwestern Universitys School of Speech í Evanston, Illinois (núna School of Communication) og útskrifaðist með BS. gráðu í máli og sjónleik.[3]
Vann sem veðurfréttakona á KHGI-TV sjónvarpsstöðinn í Kearney, Nebraska með námi.
Helgenberger hefur í gegnum árin verið á lista yfir fallegustu konur Hollywoods. Árið 2002 þá var hún á lista People tímaritið yfir "50 Most Beautiful People",[4] einnig var hún á lista Esquire Magazine’s “5 More Women We Love” frá 2002,[5] var númer 15 af 25 mest aðlaðandi konum í ameríku árið 2004. Einnig árið 2004 þá var hún númer 35, 30, 29, 20, 17, 12 og 9 yfir lista The Glamour Girls Hot 100 vegna myndarinnar In Good Company og forsíðu TV Guide. Var hún á listanum í um 10 vikur og var eina viku í top tíu listanum. Hún er fjóðra elsta konan til þess að vera á top tíu listanum. Persónan hennar í CSI: Crime Scene Investigation, Catherine Willows, ásamt persónunni Gil Grissom, voru nr. 82 yfir "Bravo's 100 Greatest TV Characters".[6] Í mars 2006, Catherine Willows var nefnd númer 6 yfir The Star's Top Ten Hottests TV Characters. Árið 2007, var Marg nefnd ein af vingjarnlegustu stjörnum samkvæmt E! online's Answer B!tch Q&A page.[7] Í mars 2007 Helgenberger var nefnd ein af kynþokkafyllstu sjónvarpsstjörnum ársins 2007 af TV Guide Magazine.[8] Entertainment Weekly hafði hana inni á lista þeirra yfir "The EW 100 Stars We Love Right Now" frá 2007.[9] Í apríl 2008, gekk hún til liðs við hóp af stjörnum sem mátti sjá vera með mjólkurskegg til þess að auglýsa (Got Milk?). [10].
Árið 1984, þá kynntist Marg, Alan Rosenberg, sem var gestaleikari í Ryan's Hope. Urðu þau vinir og byrjuðu að vera saman árið 1986. Giftust þau árið 1989 og eiga saman einn son, Hugh Howard Rosenberg, nefndur eftir föður Helgenbergers, Hugh Helgenberger. Þann 1. desember, 2008, var tilkynnt að þau væru skilin, og 25. mars, 2009, óskaði hún eftir skilnaði.[11][12]
Vegna baráttu móður hennar gegn brjóstakrabbameini , þá urðu Helgenberger og Rosenberg viðriðin baráttunni gegn brjóstakrabbameini. Hafa þau haldið góðgerðarsamkomu sem kallast Marg and Alan's Celebrity Weekend hvert ár í Omaha, Nebraska síðan 1997.
Remove ads
Ferill
Leikhús
Áhugi Helgenberger á leiklist kviknaði eftir að hún lék Blanche Dubois í leikritinu A Streetcar Named Desire í háskóla.
Helgenberger var spottuð af útsendara frá sjónvarpsóperunni Ryan´s Hope sumarið 1981 þegar hún var að leika í Shakespeare leikritinu Taming of the Shrew.
Sjónvarp
Stuttu eftir að hafa lokið námi, þá fékk Marg hlutverk í sápuóperunni sem hin taugastrekkta lögreglukona Siobhan Ryan Novak sem hún lék til ársins 1986.
Árið 1988 þá var Marg ráðin til þess að leika í sjónvarpsþættinum China Beach sem Karen Charlene 'K.C.' Koloski. Frammistaða hennar í China Beach gaf henni Emmy verðlaun sem besta leikkona í aukahlutverki í drama seríu árið 1990. Marg lék í China Beach allt til ársins 1991.
Helgenberger fékk stóra tækifærið þegar henni var boðið hlutverk Catherine Willows í CBS sjónvarpsþættinum CSI: Crime Scene Investigation. Áður en upptökur hófust þá heimsótti Helgenberger líkhús Clark sýslunnar í Nevada til þess að sjá hvernig krufningar færu fram og hverning vinnan færi fram í líkhúsum. Frammistaða hennar sem Willows hefur gefið henni tvennar Emmy og Golden Globe tilnefningar. Marg yfirgaf þáttinn í janúar 2012 eftir að hafa verið hluti af honum síðan 2000.
Kvikmyndir
Árið 1989 kom Marg fram í sinni fyrstu kvikmynd sem var hryllingsmyndin After Midnight, síðan lék hún í kvikmyndinni Always eftir Steven Spielberg með Richard Dreyfuss, Holly Hunter og John Goodman.
Um miðjan níunda áratuginn, kom Marg fram í Crooked Hearts (1991) með Peter Berg, Vincent D´Onofrio, Jennifer Jason Leigh, Noah Wyle og Peter Coyote. Einnig lék hún í The Cowboy Way (1994) á móti Woddy Harrelson.
Árið 1995, þá lék hún í kvikmyndinni Species sem Dr. Laura Baker og endurtók hlutverkið í framhaldsmyndinni Species II (1998).
Hefur hún einnig komið fram í kvikmyndum á borð við: Fire Down Below, In Good Company, Always, Bad Boys og Peacemaker.
Remove ads
Kvikmyndir og sjónvarpsþættir
Remove ads
Verðlaun og tilnefningar
Blockbuster Entertainment Award
- 2001: tilnefnd – Besta leikkona í aukahlutverki fyrir drama – Erin Brockovich
Emmy Award
- 1990: vann – Besta leikkona í aukahlutverki í drama seríu – China Beach
- 1992: tilnefnd – Besta leikkona í aukahlutverki í drama seríu – China Beach
- 2001: tilnefnd – Besta leikkona í drama seríu – CSI
- 2003: tilnefnd – Besta leikkona í drama seríu – CSI
Golden Globe Award
- 1991: tilnefnd – Besta leikkona í aukahlutverki í míni-seríu eða sjónvarpsmynd – China Beach
- 1991: tilnefnd – Besta leikkona í aukahlutverki í drama seríu – China Beach
- 1992: tilnefnd – Besta leikkona í aukahlutverki í drama seríu – China Beach
- 2002: tilnefnd – Besta leikkona í drama seríu – CSI
- 2003: tilnefnd – Besta leikkona í drama seríu – CSI
Satellite Awards
- 2002: tilnefnd – Besta leikkona í drama seríu – CSI
People's Choice Awards
- 2002: tilnefnd – Besti leikarahópur í drama seríu - CSI
- 2003: tilnefnd – Besti leikarahópur í drama seríu – CSI
- 2004: tilnefnd – Besti leikarahópur í drama seríu – CSI
- 2005: vann – Uppáhalds kvenn sjónvarpsstjarna – CSI
- 2005: vann – Besti leikarahópur í drama seríu – CSI
Screen Actors Guild Awards
- 2005: vann – Besti leikarahópur í drama seríu – CSI
TV Guide Awards
- 2001: tilnefnd –Leikkona ársins í nýrri seríu – CSI
Viewers For Quality Television Awards
- 1989: vann – Besta leikkona í aukahlutverki í drama seríu – China Beach
- 1990: vann – Besta leikkona í aukahlutverki í drama seríu – China Beach
- 1991: vann – Besta leikkona í aukahlutverki í drama seríu – China Beach
Remove ads
Heimildir
Tenglar
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads