Meshuggah

From Wikipedia, the free encyclopedia

Meshuggah
Remove ads

Meshuggah er sænsk þungarokkssveit frá Umeå, Svíþjóð, sem stofnuð var árið 1987. Sveitin er þekkt fyrir framúrstefnulegan stíl með flóknum töktum. Hljómsveitin spilar einhvers konar öfgaþungarokk og blöndu af meðal annars dauðarokki, þrassi og framsæknu þungarokki. Meshuggah vakti fyrst athygli með plötunni Destroy, Erase, Improve (1995) og telst áhrifamikil í þungarokksgeiranum. Gítar- og bassaleikarar hljómsveitarinnar hafa notast við sjö og átta strengja gítara.

Thumb
Meshuggah á Eistnaflugi, Neskaupstað (2016).
Thumb
Fredrick Thordendal gítarleikari Meshuggah spilar flókin sóló (2008).

Árið 2016 spilaði hljómsveitin á Eistnaflugi í Neskaupstað. Meshuggah þýðir brjálaður á jiddísku.

Remove ads

Meðlimir

  • Jens Kidman – söngur (1987–), gítar (1987–1992)
  • Fredrik Thordendal – gítar, bakraddir (1987–), bassi (2001–2004)
  • Tomas Haake – trommur (1990–)
  • Mårten Hagström – gítar (1992–)
  • Dick Lövgren – bassi (2004–)

Fyrrum meðlimir

  • Niklas Lundgren – trommur (1987–1990)
  • Peter Nordin – bassi (1987–1995)
  • Gustaf Hielm – bassi (1995–2001)

Breiðskífur

  • Contradictions Collapse (1991)
  • Destroy Erase Improve (1995)
  • Chaosphere (1998)
  • Nothing (2002)
  • Catch Thirtythree (2005)
  • obZen (2008)
  • Koloss (2012)
  • The Violent Sleep Of Reason (2016)
  • Immutable (2022)

Tengill

Meshuggah, band history interview - Loudersound.com

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads