Eistnaflug

þungarokkshátíð í Neskaupstað From Wikipedia, the free encyclopedia

Eistnaflug
Remove ads

Eistnaflug var þungarokkshátíð sem haldin er í kringum fyrstu helgina í júlí í Neskaupstað. Nafnið er orðaleikur af hátíðinni Neistaflug sem haldin er á staðnum um verslunarmannahelgi.

Thumb
Ensími á Eistnaflugi (2016).
Thumb
Sólstafir á Eistnaflugi árið 2009.

Fyrsta hátíðin var haldin í ágúst árið 2005 og stækkaði ár frá ári. Þó áhersla hafi verið lögð á þungarokk hafa einnig spilað annars konar rokkbönd þar og jafnvel rapp og vinsældapopp (t.d. Páll Óskar).

Erlend þungarokksbönd spilað á hátíðinni og má þar nefna Napalm Death, At The Gates, Enslaved, Rotting Christ, Amorphis, Opeth, Bloodbath og Meshuggah. Kvikmyndargerðarmaðurinn kanadíski Sam Dunn heimsótti hátíðina árið 2016 og tók þátt í umræðupanel ásamt því að taka viðtöl við hljómsveitir og fleiri.

Frá 2015 var íþróttahöllin í Neskaupstað verið notuð samhliða Egilsbúð en síðarnefndi staðurinn var aðaltónleikastaðurinn fyrstu árin. Fjöldi hljómsveita sem spiluðu árið 2016 var 77.[1]

Hátíðin hefur ekki verið haldin síðan 2022. [2] Frá því 2024 hefur hátíðin Sátan í Stykkishólmi tekið við keflinu.

Remove ads

Tenglar

Eistnaflug heimasíða Geymt 25 febrúar 2021 í Wayback Machine

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads