Miðlari

hugbúnaðurinn eða vélbúnaðurinn sem er hannaður til að veita notendum aðgang að nauðsynlegum auðlindum og framkvæma ýmsar aðgerðir. From Wikipedia, the free encyclopedia

Miðlari
Remove ads

Miðlari (líka netþjónn eða þjónn) er samsetning vélbúnaðar og hugbúnaðar sem ætlað er að veita biðlara þjónustu. Þegar hugtakið er notað eitt og sér á það aðallega við um tölvur sem keyrðar eru með miðlarastýrikerfi, en er einnig notað til að vísa í hvaða hugbúnað eða sérnota vélbúnað sem er fær um að veita slíka þjónustu.

Thumb
Wikipedia-miðlari í Flórída, Bandaríkjunum

Netþjónn er miðlari sem miðlar gögnum á tölvuneti, hvort sem það er lokað innranet eða á Internetinu. Algengasta tegund netþjóna eru vefþjónar og póstþjónar. Netþjónar nota samskiptastaðla til að tengjast og skiptast á gögnum við biðlara. Dæmi um biðlara eru til dæmis heimilistölvur sem eru með vafra og leitarvélar og vefköngulær þeirra. Dæmi um samskiptastaðla eru TCP, IP, UDP, HTTP og SMTP.

Remove ads

Tengt efni

  Þessi tölvunarfræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads