Nintendo Switch

leikjatölva frá Nintendo From Wikipedia, the free encyclopedia

Nintendo Switch
Remove ads
Remove ads

Nintendo Switch er leikjatölva frá Nintendo sem kom út 3. mars 2017. Hana má nota bæði sem smáleikjatölvu og tengda við sjónvarp. Heima má setja hana í hleðsludokku sem er tengd við sjónvarp um HDMI-snúru. Hún er líka með fjölsnertiskjá sem nota má á ferðinni þegar tölvan er ekki í dokkunni.

Thumb
Nintendo Switch með standara.

Þann 20. september 2019 kom út Nintendo Switch Lite, minni útgáfa af upprunalegu tölvunni sem er aðeins hægt að nota sem smáleikjatalva en ekki er hægt að tengja hana við sjónvarp.[1] 8. október 2021 kom út uppfærð útgáfa af tölvunni með stærri OLED-skjá. [2]

Hún er með þráðlausum stýripinnum (sem kallast Joy-Con) með tökkum, hreyfingarskynjurum og titringsmótor. Festa má stýripinnana við tölvuna með því að renna þeim í raufar hvorum megin á tölvunni. Taka má stýripinnana af og nota hvorn fyrir sig þannig að tveir geta spilað saman.

Spila má með öðrum bæði á netinu og um þráðlaust staðarnet. Leikirnir fást bæði á leikjakortum og á netinu í gegnum Nintendo eShop.

Remove ads

Heimild

Loading content...
Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads